Hækkun viðmiðunarfjárhæða tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur gefið út uppfærðar viðmiðunarfjárhæðir tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða fyrir árið 2024.
Um er að ræða tekju- og eignamörk leigjenda félagslegra leiguíbúða sem fjármagnaðar voru með lánum frá Íbúðalánasjóði á grundvelli þágildandi 1. mgr. 37. gr. laga um húsnæðismál fyrir 10. júní 2016 en þá tók við nýtt fyrirkomulag fjármögnunar slíkra íbúða með stofnframlögum á grundvelli laga um almennar íbúðir.
Frá og með 1. janúar 2024 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk leigjenda slíkra félagslegra leiguíbúða (skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um húsnæðismál) eftirfarandi:
- Árstekjur einstaklings: 7.176.000 kr.
- Árstekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu: 1.794.000 kr.
- Árstekjur fyrir hjón og sambúðarfólk: 10.047.000 kr.
- Eignamörk verða: 7.745.000 kr.