Þörf á að endurhugsa fæðukerfin
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hélt opnunarerindi á fjölsóttu Matvælaþingi í Silfurbergi í Hörpu í gær.
Meginviðfangsefni þingsins í ár var hringrásarhagkerfið. Í erindi ráðherra kom fram að eitt markmiða matvælastefnu Íslands til 2040 er að styðja við hringrásarhagkerfið með rannsóknum og þróun, bæði í fullvinnslu og fullnýtingu afurða.
„Í stefnunni kemur fram að leggja þurfi áherslu á að öll hráefni og hliðarstraumar verði að nýtanlegum afurðum, og að stuðla skuli að minni matarsóun og minna kolefnisspori matvælaframleiðslu. Þessi markmið stuðla að aukinni sjálfbærni og minna álagi á náttúruauðlindir, og leiða til aukinnar verðmætasköpunar, nýrra tækifæra og fjölbreyttari atvinnustarfsemi“ sagði ráðherra.
Ráðherra kom einnig inn á mikilvægi hringrásarhagkerfis til framtíðar.
„Það er mikilvægt að við endurhugsum fæðukerfin okkar í þágu samdráttar í losun, og hringrásarhagkerfið er hluti af því stóra verkefni. Innleiðing hringrásarhagkerfisins er eitt af þeim stóru og mikilvægu skrefum sem við verðum að stíga framtíðarkynslóðum til heilla. Ég hef mikla trú á innlendri matvælaframleiðslu, hvort sem er til sjávar eða sveita, í dreifbýli eða þéttbýli“.
Á þinginu fluttu innlendir og erlendir fyrirlesarar erindi úr ýmsum greinum matvælaframleiðslu og fjölbreyttur hópur fulltrúa úr matvælageiranum og tengdum greinum tók þátt í pallborðsumræðum.
Fyrirspurnir og athugasemdir þinggesta, ásamt því efni sem var kynnt á þinginu, munu nýtast við undirbúning aðgerðaáætlunar á grunni matvælastefnu Íslands til 2040.
Streymi frá þinginu má sjá hér.
Matvælastefnu Íslands til 2040 má sjá hér.