Ráðstefna Almannavarna: "Hvers vegna erum við öll almannavarnir?"
Ráðstefna Almannavarna verður haldin á Hilton Reykjavik Nordica þriðjudaginn 17. október kl. 13:00-16:30. Þar verður leitast við að svara spurningunni: "Hvers vegna erum við öll almannavarnir?" Ráðstefnunni verður streymt á ruv.is.
Almannavarnir voru stofnaðar árið 1963 og eru því 60 ára á þessu ári. Í upphafi var hlutverk Almannavarna að skipuleggja og framkvæma ráðstafanir sem miðuðu að því að koma í veg fyrir að almenningur yrði fyrir líkams- eða eignatjóni af völdum hernaðaraðgerða og veita líkn og aðstoð vegna tjóns sem hefði orðið. Með breyttu samfélagi hefur hlutverk Almannavarna breyst, en þó ekki því hlutverkið er fyrst og fremst að verja líf og heilsu almennings á Íslandi.
Ráðstefnan er fyrir alla sem hafa áhuga á almannavörnum og þá sem starfa hjá ráðuneytum, stofnunum, sveitarfélögum og mikilvægum innviðum.
Aðgangur er ókeypis en skráning nauðsynleg. Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Hjördísi Guðmundsdóttur, samskiptastjóra Almannavarna ([email protected]).
Dagskrá ráðstefnunnar
13:00 – 13:10 // Opnun ráðstefnunnar, Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
13:10 – 13:40 // Hvers vegna erum við öll almannavarnir?
Hver eru þessi “öll” og hvernig hefur almannavarnarkerfið breyst á 60 árum?
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna
13:40 – 14:00 // Skriða kom og hvað svo. Áhrif stóráfalla á meðalstóra stjórnsýslu!
Langtímaviðbrögð og enduruppbygging samfélags eru ekki síður mikilvæg en fyrsta viðbragð. Mikilvægt er að hefja sem fyrst enduruppbyggingu eftir áfall með endurreisn innviða, félagsþjónustu og efnahags. Sveitarfélög þurfa ekki að lenda í áfallinu til að læra af þeim. Júlía Sæmundsdóttir mun fjalla um allar þær áskoranir sem tóku við hjá Múlaþingi eftir að aurskriðurnar féllu í desmeber 2020.
Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri Múlaþings
14:00 – 14:15 // Hvað eru mikilvægir innviðir og hvað eru ómissandi innviðir?
Mikilvægir innviðir eru þau kerfi og mannvirki sem eru nauðsynleg til að halda mikilvægum verkefnum í samfélaginu gangandi. Þau einkennast af því að ef bilun eða brestir koma upp, gæti það fljótt leitt til tjóns eða missis á starfsemi og því er sérstaklega mikilvægt að forðast truflanir.
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna
14:15 – 14:35 // Vöktun, viðvaranir og upplýsingagjöf vegna náttúruvár.
Náttúran á Ísland er kvik og víða leynast hættur. Sumir atburðir eiga sér langan aðdraganda á meðan aðrir dynja yfir með nánast engum fyrirvara. Hvernig er fylgst með breytingum í náttúrunni, hvað fer fram á fundum vísindaráðs og hvaðan fá viðbragðsaðilar og stjórnvöld áreiðanlegar upplýsingar þegar taka þarf mikilvægar ákvarðanir?
Björn Oddsson, fagstjóri áhættustýringa og rannsókna hjá Almannavörnum
14:35 – 15:05Kaffihlé
15:05 – 15:25 // Við erum öll stafrænar almannavarnir
Er hægt að lama Ísland með netárásum og öryggisveikleikum og hvernig getum við virkjað almenning til þess að vinna saman að því að auka öryggi okkar stafræna samfélags?
Theódór R. Gíslason, Stofnandi og tæknistjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis
15:25 – 15:45 // Fjölmiðlar í almannavarnarástandi
Fjölmiðlar gegna mikilvægu hlutverki við að koma upplýsingum til almennings í almannavarnarástandi. En hvað ef rafmagnið fer eða stór netárás er gerð á innviði Íslands, hvernig fara mikilvæg skilaboð til þjóðarinnar í almannavarnarástandi? Hvert er planið hjá fjölmiðli sem er hluti af almannavarnarkerfinu?
Bragi Reynisson – Forstöðumaður Tækni hjá RÚV
15:45 – 16:00 // Flóttamaður í eigin landi
Kristín Jóhannsdóttir er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Kristín var nýorðin 13 ára og man því nokkuð vel eftir augnablikinu þegar byrjaði að gjósa.
Kristín Jóhannsdóttir, safnstjóri Eldheima í Vestmannaeyjum
16.00 – 16:15 // Samantekt á ráðstefnu og ráðstefnulok
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, Ríkislögreglustjóri