Uppreiknuð eignamörk vegna húsaleigubóta
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997, og 7. gr. reglugerðar um húsaleigubætur, nr. 118/2003, tekur viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á neysluverðsvísitölu. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands hækkaði neysluverðsvísitalan um 5,86% frá 1. janúar 2007 til 1. janúar 2008.
Frá og með 1. janúar 2008 er uppreiknuð viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta 4.660.142 krónur.