Hoppa yfir valmynd
27. september 2021 Utanríkisráðuneytið

Bóluefni frá Íslandi komið til Afríku

Fyrstu skammtarnir sem Ísland gefur af AstraZeneca bóluefninu gegn COVID-19 hafa borist Fílabeinsströndinni í Afríku. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem gefin var út af hálfu bólusetningarbandalagsins Gavi í síðustu viku. Alls fóru 35.700 skammtar frá Íslandi til Fílabeinsstrandarinnar, en Ísland hefur gefið alla 125.726 umframskammta af bóluefninu AstraZeneca í bóluefnasamstarfið COVAX í gegnum samstarf við Svíþjóð. Fleiri skammtar verða sendir til annarra viðtökuríkja á næstunni en samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni eru einungis 3,6 prósent íbúa í Afríku nú fullbólusett.

Utanríkisráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið hafa unnið saman að því að koma þeim AstraZeneca bóluefnaskömmtum sem ekki verða nýttir hér á landi til annarra ríkja þar sem þörfin er mest í gegnum bóluefnasamstarfið COVAX. Íslensk stjórnvöld hafa til viðbótar við gjafir á umframskömmtum veitt rúmlega einum milljarði íslenskra króna til COVAX.

„Tryggt aðgengi allra jarðarbúa að bóluefni gegn kórónuveirunni er mikið réttætismál og þar lætur Ísland ekki sitt eftir liggja. En það eru einnig sameiginlegir hagsmunir okkar allra að sjúkdómurinn verði kveðinn niður á heimsvísu sem fyrst,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.

COVAX er bóluefnastoð alþjóðlegs samstarfs til þess að flýta þróun, framleiðslu og jöfnum aðgangi að skimunarbúnaði, meðferðum og bóluefni gegn COVID-19. Stærstur hluti framlags Íslands hefur runnið til COVAX-AMC sem snýr að kaupum og dreifingu COVID-19 bóluefnaskammta fyrir þróunarlönd. Bólusetningarbandalagið Gavi hefur umsjón með þessum þætti samstarfsins, en UNICEF sér um flutning á bóluefnum á áfangastað. 

 
  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta