Mál nr. 69/2012.
Úrskurður
Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 7. maí 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 69/2012.
1.
Málsatvik og kæruefni
Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 28. febrúar 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem hún hafi verið að vinna hjá B. 14. desember 2011 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi, fyrir tímabilið frá 14. desember til 31. desember 2011 að fjárhæð samtals 77.809 kr., sem verði innheimt skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 12. apríl 2012. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 7. febrúar 2011. Þann 13. febrúar 2012 var kæranda sent erindi þar sem henni var tilkynnt að samkvæmt gögnum frá aðilum vinnumarkaðarins frá 14. desember 2011 hafi hún verið við störf hjá fyrirtækinu B. samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að tilkynna það til stofnunarinnar. Óskað var eftir skýringum sem skyldu berast bréfleiðis til Vinnumálastofnunar eða með tölvupósti á hjálögðu netfangi. Stofnuninni barst bréf frá kæranda 22. febrúar 2012 þar sem hún greinir frá því að hún hafi fengið vinnu yfir jólin og að hún hafi talið að sökum þess að bótaréttur hennar til atvinnuleysistrygginga næmi 70% væri henni heimilt að vera í 30% starfi.
Kærandi kveðst hafa tekið að sér vinnu í desember og hafi hún alltaf ætlað að skila inn tilkynningu vegna þeirra tekna sem hún fékk fyrir vinnuna. Hún hafi af því tilefni fengið bréf frá Vinnumálastofnun og hafi hún sent skýringarbréf um hæl. Kærandi kveðst ekki hafa ætlað að svíkja út fé og hefði hún sagt upp atvinnuleysisbótunum hefði hún fengið meiri vinnu, en staðnum hafi verið lokað í janúar vegna breytinga.
Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 11. júní 2012, bendir Vinnumálastofnun á að mál þetta varði viðurlög vegna brota á 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kærandi hafi verið í starfi á innlendum markaði á sama tíma og hún hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur, án þess að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit væri hætt skv. 35. gr. a eða 10. gr. laganna.
Jafnframt bendir Vinnumálastofnun á að með lögum nr. 134/2009 um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar hafi verið gerðar veigamiklar breytingar á 60. gr. laganna. Verknaðarlýsing lagagreinarinnar geri grein fyrir því hvaða atvik geta leitt til þess að viðurlögum á grundvelli ákvæðisins er beitt. Segi í athugasemdum með 23. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 134/2009 að meðal annars komi til greina að beita viðurlögum á grundvelli ákvæðisins þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna stofnuninni um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða 35. gr. a laganna.
Bent er á 10. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem fram kemur að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum skuli tilkynna til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar þegar hann hættir virkri atvinnuleit. Jafnframt áréttar Vinnumálastofnun ákvæði 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar þar sem sú skylda sé lögð á þá sem tryggðir eru samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu á þeim tíma er sá tryggði fær greiddar atvinnuleysisbætur, eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.
Í 13. gr. laganna segi að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistrygginga að hann sé í virkri atvinnuleit. Í c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna sé tekið fram að launamaður verði að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Það sé ljóst að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar, hvort sem hann þiggi laun fyrir eður ei.
Af gögnum málsins megi ráða að kærandi hafi verið við störf fyrir B. 14. desember 2012 þegar aðilar vinnumarkaðarins hittu hana fyrir á vinnustað. Enn fremur segi kærandi í skýringabréfi sínu sem barst Vinnumálastofnun 22. febrúar 2011 að hún hafi fengið vinnu yfir jólin. Kærandi hafi ekki tilkynnt um þessar breytingar á högum sínum til stofnunarinnar en rík skylda hvíli á þeim sem njóti greiðslna atvinnuleysisbóta að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar sem geti ákvarðað bótarétt viðkomandi. Vanþekking kæranda á lögum um atvinnuleysistryggingar breyti ekki þeirri skyldu sem á henni hvíli samkvæmt þeim. Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit sé hætt eða tilkynningu um tekjur, sbr. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum. Kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar frá 14. desember til 31. desember 2011.
Í 39. gr. laganna sé fjallað um leiðréttingu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laganna beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Beri því kæranda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 14. desember til 31. desember 2011 að fjárhæð 77.809 kr. en í þeirri fjárhæð er 15% álag.
Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. júní 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 27. júní 2012. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.
2.
Niðurstaða
Eftirlitsaðilar vinnumarkaðarins höfðu fyrir 21. desember 2011 ekki lagaheimild til að spyrjast fyrir um persónulega hagi einstaklinga sem voru staddir á vinnustöðum eða öðrum álíka vettvangi, sbr. úrskurði úrskurðarnefndarinnar frá 11. september 2012 í málum nr. 135/2011 og nr. 140/2011 sem og sambærilegan úrskurð úrskurðarnefndarinnar frá 6. nóvember 2012 í máli nr. 152/2011. Þessi ágalli í þessu tiltekna máli kemur hins vegar ekki að sök þar sem kærandi hefur veitt allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að taka efnislega afstöðu til málsins, sbr. úrskurði úrskurðarnefndarinnar frá 6. nóvember 2012 í málum nr. 3/2012, nr. 9/2012 og nr. 42/2012.
Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með hliðsjón af mikilvægi ákvæðisins við framkvæmd atvinnuleysistryggingakerfisins þykir réttlætanlegt að varpa ítarlegu ljósi á forsögu þess og tilgang. Markmiðið með þessu er að setja fram skýr viðmið um hvernig beri að túlka ákvæðið.
Þegar lög um atvinnuleysistryggingar voru upphaflega sett var kveðið á um þá meginreglu í 1. málsl. 60. gr. laganna að sá sem aflar sér eða reynir að afla sér atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum með svikum getur misst rétt sinn í allt að tvö ár og þurft að sæta sektum. Það var hvergi skýrlega skilgreint hvað væru svik í skilningi ákvæðisins og er sú ályktun nærtæk að ákvæðinu hafi sjaldan verið beitt fram til þess tíma sem því var breytt með setningu 23. gr. laga nr. 134/2009. Þessi nýja regla tók gildi 1. janúar 2010 og veigamesti tilgangur hennar var að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.
Í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009 kom meðal annars fram að beita ætti ákvæðinu í þrenns konar tilvikum, í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.
Með setningu 4. gr. laga nr. 103/2011 var orðalagi 1. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar breytt. Frá og með 3. september 2011 hefur ákvæðið verið svohljóðandi:
Þegar þessi texti er skýrður er óhjákvæmilegt að horfa til þeirra athugasemda sem vitnað var hér til að framan um 23. gr. laga nr. 134/2009. Þannig er ljóst að 1. málsl. ákvæðisins á við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir 2. málsl. ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að 2. málsl. tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku.
Sérstök ástæða er til að taka fram að orðalagið „[h]ið sama gildir“ í upphafi 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vísar einvörðungu til viðurlaganna sem upp eru talin í fyrsta málslið ákvæðisins en ekki til þeirra huglægu skilyrða sem þar þurfa að vera uppfyllt. Þessi túlkun byggir meðal annars á því að greiðsla atvinnuleysisbóta er ekki ætluð þeim sem sinna störfum á vinnumarkaði og því teljast það svik í skilningi 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef atvinnuleitandi sinnir starfi á vinnumarkaði án þess að láta Vinnumálastofnun vita af því með þeim hætti sem kveðið er á um í 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Þessi skilningur er í samræmi við orðalag 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og fær einnig stoð í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009.
Hvort sem háttsemi fellur undir 1. eða 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru viðurlög við bótasvikum ströng en þau fela í sér að atvinnuleitanda ber ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Jafnframt ber atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr. laganna, sbr. lokamálslið 60. gr. laganna.
Fyrir liggur að kærandi starfaði hjá fyrirtækinu B. frá 14. desember til 31. desember 2011 og fékk greiddar fyrir það 67.660 kr. Þetta gerði hún á sama tíma og hún þáði greiðslu atvinnuleysisbóta og án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit væri hætt.
Hún segist sjálf hafa fengið tímabundna vinnu um jólin og því verður að líta svo á að um tilfallandi vinnu hafi verið að ræða. Hún tilkynnti ekki um hina tilfallandi vinnu og fellur því undir þann hluta 60. gr. sem fjallar um það er atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.
Af hálfu kæranda kemur fram að hún hafi fengið 70% atvinnuleysisbætur og hafi hún talið að hún mætti þess vegna vera í 30% vinnu. Ekki verður fallist á að kærandi geti borið fyrir sig vankunnáttu á lögum um atvinnuleysistryggingar enda eru afhentir bæklingar á kynningarfundum Vinnumálastofnunar og ítarlegar upplýsingar er einnig að finna á heimasíðu stofnunarinnar.
Með vísan til framanskráðs og skv. 1. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er hin kærða ákvörðun staðfest.
Kæranda ber að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að viðbættu 15% álagi, fyrir tímabilið frá 14. desember til 31. desember 2011 að fjárhæð samtals 77.809 kr. með 15% álagi þegar hún uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Úrskurðarorð
Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 28. febrúar 2012 í máli A þess efnis að hún skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest.
Kærandi skal endurgreiða Vinnumálastofnun ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð samtals 77.809 kr. en í þeirri fjárhæð er 15% álag.
Brynhildur Georgsdóttir,
formaður
Hulda Rós Rúriksdóttir Helgi Áss Grétarsson