Kynning 18. janúar á niðurstöðum könnunar
Miðvikudaginn 18. janúar nk. verða kynntar niðurstöður 4. úttektar á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga. Viðurkenningar verða veittar fyrir besta ríkisvefinn og besta sveitarfélagsvefinn. Kynningin fer fram á Grand Hótel Reykjavík frá kl. 12-14 og skráning er á vefnum sky.is.
Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011?
Kynning á niðurstöðum 4. úttektarinnar á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga
Viðurkenningar veittar fyrir besta ríkisvefinn og besta sveitarfélagavefinn
Hádegisfundur á Grand Hótel Reykjavík, 18. janúar, kl. 12-14
Skráning á vef Skýrslutæknifélagsins: sky.is
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram.
Camenbertgljáð blálanga á grænmetisbyggbeði með dillostasósu.
Kaffi, te og konfekt.
12:20-12:30 Aðdragandi og markmið úttektar.
Halla Björg Baldursdóttir, forstöðumaður rafrænnar stjórnsýslu, Þjóðskrá Íslands.
12:30-13:10 Framkvæmd, úrvinnsla og helstu niðurstöður úttektar á opinberum vefjum 2011.
Jón Kristinn Ragnarsson, sérfræðingur og Tryggvi R. Jónsson, liðsstjóri, Áhættuþjónusta Deloitte hf.
13:10-13:30 Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, veitir viðurkenningar fyrir besta ríkisvefinn og besta sveitarfélagavefinn.
Inngangur dómnefndar.
Marta Kristín Lárusdóttir, lektor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík, Helga Arnardóttir, fréttamaður á Stöð 2 og Rakel Pálsdóttir, forstöðumaður almannatengsla hjá Samtökum iðnaðarins.
Viðurkenningar afhentar.
13:30-13:55 Horft fram á veg – Hvað má betur fara á opinberum vefjum?
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis.
13:55-14:00 Lokaorð - ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjóri: Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í innanríkisráðuneyti.
Undirbúningsnefnd: Guðbjörg Sigurðardóttir, innanríkisráðuneyti, Björn Sigurðsson, forsætisráðuneyti og Halla Björg Baldursdóttir, Þjóðskrá Íslands.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 4.900 kr. Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 7.900 kr. Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.000 kr.