Mál nr. 34/2015 Eiginnafn: Cæsar
Hinn 27. maí 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 34/2015:
I. Málavextir
Með bréfi, dags. 6. ágúst 2010, fóru xx og yy fram á það við mannanafnanefnd að úrskurður nefndarinnar frá 13. júlí 2010 í máli nr. 61/2010 yrði endurskoðaður. Í úrskurðinum var beiðni um eiginnafnið Cæsar hafnað.
Í bréfi xx og yy kemur m.a. eftirfarandi fram:
,,Nafninu Cæsar er samkvæmt máli nr. 61/2010 hafnað á þeirri forsendu að C sé ekki til í íslensku stafrófi og þar af leiðandi er ritun þess að brjóta í bág við íslenskt málkerfi og vísað er í auglýsingar um íslenska starfsetningu. Við höfum nú lesið áðurnefndar auglýsingar og getum við ekki séð að þar sé fjallað sérstaklega um stafinn C. Við höfum skoðað leyfð karlmanns eiginnöfn sem birt eru á heimasíðu mannanafnanefndar. Þar eru leyfð nöfnin Carl, Cecil, Christian, Christopher, Cýrus. Einnig er eiginnafnið Victor leyft. Samkvæmt því er ljóst að stafurinn C hefur verið samþykktur af mannanafnanefnd í þessum tilvikum og fleirum, þar sem 9 stúlknanöfn sem byrja á stafnum C hafa einnig verið samþykkt af Mannanafnanefnd. Fordæmin eru því greinilega til staðar enda eru nöfn sem rituð eru með C komin í íslensk manntöl þegar árið 1845.
Samkvæmt gögnum Þjóðskrár Íslands er [...] einn karl skráður með eiginnafnið Cæsar sem síðara nafn. Hann er faðir drengsins og fæddur 1985. Einnig eru skráðir tveir látnir einstaklingar með nafninu Cæsar, annar fæddur 1897 en sá yngri, langafi drengsins Cæsar Hallgrímsson var fæddur 1910 en af einhverjum ástæðum er hann skráður fæddur 1911 í þjóðskrá. Af hverju Cæsar sá sem fæddur eru 1897 er ekki skráður í manntal 1910 höfum við ekki skýringar á, en langafi drengsins okkar Cæsar Hallgrímsson var skírður Sessel (framburður Sesel) en því nafni var breytt í Cæsar meðan hann var enn á unga aldri.
Við viljum hins vegar benda á að í Íslendingabók er skráður maður að nafni Sigmundur Cæsar Karlsson sem fæddur er 1954 og í Morgunblaðinu frá árinu 1974 er birt mynd af honum þar sem þessi ritháttur nafnsins kemur fram. Í dagblöðum frá fyrri tímum eru einnig tilkynningar um brúðkaup tveggja einstaklinga með þessu nafni. Það eru Gunnar Cæsar Pétursson, tilkynning birt í morgunblaðinu þriðjudaginn 23. desember 1958 og Karl Cæsar Sigmundsson tilkynning birt í morgunblaðinu föstudaginn 13. febrúar 1959. Á heimasíðunni handrit.is kemur fram að árið 1895 er gefin út bók að nafni „Sögu og rímnabók“. Skrifari þessa handrits er Júlíus Cæsar Þorsteinsson. Valdimar Hólm Hallstað hagyrðingur og textaskáld 1906-1989 tók sér skáldanafnið Cæsar og kemur það fram víða þar sem textar hans eru fluttir. Má þar nefna að texti hans „Úr fjarlægð“ er sungin við margar íslenskar útfarir og er þá skáldanafn hans gjarnan skráð á útfararritin. [...] Loks má geta að í gömlum íslenskum söguritum er nafn Júlíusar Caesars jafnan ritað sem Júlíus Cæsar.
Við vitum ekki hvort ofangreindir einstaklingar hafa verið skírðir þessum nöfnum eða þeir hafa tekið sér þau síðar á lífsleiðinni. Hitt er ljóst að ritháttur nafnsins hefur verið þekktur hér á landi amk. frá 1895 er Júlíus Cæsar Þorsteinsson er skráður fyrir handriti. Ritháttur nafnsins kemur vissulega fram fyrr hér á landi þar sem nafn Júlíusar Caesars Rómarkeisara er ritað í íslenskum sögum og sögnum sem Júlíus Cæsar. Það er því ljóst að nafnið Cæsar hefur komið fyrir í íslenskum bókmenntum, sem höfundarnafn bæði bóka og texta, ásamt því að þessi ritháttur hefur greinilega verið viðurkenndur í íslensku máli hér áður fyrr, óskum við eftir að mannanafnanefnd endurskoði afstöðu sína gagnvart höfnun á nafninu og vísum þar með í að nafnið hafi unnið sér hefð eða menningarhelgi samkvæmt lið 3 um ungt tökunafn.
Ef mannanafnanefnd telur sig ekki geta staðfest nafnið á þeirri forsendu viljum við vísa í að á heimasíðu mannanafnanefndar kemur fram að rithátturinn Carl, Cecil, Christian og Victor eru leyfðir rithættir af nöfnunum Karl, Sesil, Kristján og Viktor. Með vísan í það fordæmi óskum við eftir að fá nafnið Cæsar staðfest sem rithátt af eiginnafninu Sesar.“
II. Niðurstaða
1. Eins og áður greinir lýtur beiðni sú sem hér er til úrlausnar að því að mannanafnanefnd endurskoði afstöðu sína í máli nr. 61/2010 um að hafna eiginnafninu Cæsar.
Eins og rakið er í úrskurði nr. 61/2010 þurfa öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt svo hægt sé að samþykkja nýtt mannanafn. Niðurstaðan í málinu var sú að þar sem rithátturinn Cæsar væri ekki í samræmi við íslenskar ritreglur og að ekki væri hefð fyrir rithættinum þá væri skilyrðum lagákvæðisins ekki fullnægt. Í ljósi þeirrar beiðni sem hér er til umfjöllunar má fallast á það að niðurstaða mannanafnanefndar í úrskurðinum hafi ekki verið alveg nægilega vel rökstudd. Í því ljósi er fallist á það að taka málið fyrir að nýju til þess að skýra betur af hverju niðurstaða nefndarinnar varð sú sem raunin er. Endurupptaka málsins grundvallast á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
2. Þau skilyrði sem fullnægja þarf til að mannanafnanefnd geti fallist á nýtt eiginnafn koma fram í 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn og eru eftirfarandi: Í fyrsta lagi að eiginnafn geti tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli, í öðru lagi að nafnið brjóti ekki í bág við íslenskt málkerfi og í þriðja og síðasta lagi að nafnið skuli ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
Úrskurður mannanafnanefndar í máli nr. 61/2010 byggðist í fyrsta lagi á því að bókstafurinn c væri ekki í íslensku stafrófi. Af þeirri ástæðu teldist umbeðinn ritháttur ekki í samræmi við íslenskar ritreglur. Vegna röksemda sem fram koma í beiðni um endurskoðun málsins skal tekið fram að í þessu sambandi skiptir ekki máli að ekki sé sérstaklega fjallað um bókstafinn í auglýsingum nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu. Þá breytir engu þótt eiginnöfn sem byrja á bókstafnum c séu þegar skráð á mannanafnaskrá þar sem fyrir liggur að þau hafa verið færð á skrána með vísan til þess að umræddur ritháttur hefur verið talinn hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn. Er því ekki tilefni til að breyta fyrri niðurstöðu nefndarinnar um það að nafnið Cæsar telst ekki ritað í samræmi við íslenskar ritreglur.
3. Með vísan til framangreinds er aðeins heimilt að fallast á umbeðinn rithátt eiginnafnsins Cæsar ef hann telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn. Eins og rakið er í umræddum úrskurði nefndarinnar styðst túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. gr. laga nr. 45/1996 við vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19.janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum. Reglurnar eru svohljóðandi:
„1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
a. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
b. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
c. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
d. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
e. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.“
Á síðasta ári birti Þjóðskjalasafn Íslands rafrænt manntalið frá 1920 sem skrifað hefur verið upp eftir frumskjölum og ákvað mannanafnanefnd á fundi 19. janúar 2015 að breyta vinnulagsreglum sínum með tilliti til þess og við það var d- og e-liðum vinnulagsreglnanna breytt til samræmis við það.
d. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
e. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.
Að öðru leyti eru vinnulagsreglurnar óbreyttar.
Fyrir liggur að eitt dæmi um nafnið Cæsar kemur fyrir í manntalinu 1920. Með vísan til þess er skilyrði d-liðar vinnulagsreglnanna uppfyllt og fallist verður á að rithátturinn Cæsar sé hefðaður samkvæmt 1. lið vinnulagsreglna mannanafnanefndar.
Með vísan til alls framanritaðs verður fallist á að eiginnafnið Cæsar (kvk.) uppfylli ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Cæsar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.