Ísland tók þátt í þriðju alþjóðlegu ráðstefnunni um varnir gegn fjármögnun hryðjuverka, sem indversk stjórnvöld buðu til í Nýju-Delhí 18. - 19. nóvember 2022. Fulltrúi Íslands, Guðni Bragason sendiherra, lýsti einörðum vilja stjórnvalda, til að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi um aðgerðir gegn fjármögnun hryðjuverka. Sagði hann, að tilgangur hryðjuverkamann væri að skapa ótta í samfélögum, grafa undir lýðræðinu, réttarríkinu og grundvallargildum, eins og frelsi, mannréttindum og umburðarlyndi. Stefna stjórnvalda sýndi einbeittan vilja, til að berjast á móti peningaþvætti, og fjármögnun í sambandi við útbreiðslu gereyðingarvopna (proliferation financing), afbrotastarfsemi yfir landamæri, og mansali.Efnisorð