Algeng blóðþrýstingslyf fá aftur greiðsluþátttöku almannatrygginga
Velferðarráðherra hefur ákveðið breytingu á reglugerð nr. 403/2010 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum. Með þessu er tekið á vanda sem kom upp um síðustu mánaðamót þegar veruleg verðlækkun á einu blóðþrýstingslyfi í flokki ACE-hemla leiddi til þess að nokkur blóðþrýstingslyf féllu úr greiðsluþátttöku.
Breytingin kemur til móts við ábendingar lækna og er sjúklingum tryggður aðgangur að þeim blóðþrýstingslyfjum sem höfðu greiðsluþátttöku í febrúar síðastliðnum.
Nú er svo komið að verð blóðþrýstingslyfja í flokki ACE-hemla er almennt orðið það lágt að talið er óþarfi að verðstýra notkun þeirra með skilyrtri greiðsluþátttöku.
Hins vegar gildir annað um blóðþrýstingslyf í flokki Angíótensín II blokka og önnur lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið. Það ákvæði 4. gr. reglugerðarinnar sem breytingin tekur til nær til þessara tveggja flokka blóðþrýstingslyfja og gerir ráð fyrir að viðmiðunarverð fyrir greiðsluþátttöku sjúkratrygginga verði 50% hærra en lægsta einingarverð í skömmtuðum lyfjaformum í þeim flokkum.
Talið er að umrædd breyting bæti fyrirkomulag þeirrar verðstýringar sem tekin var upp með breytingu á reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði sjúklinga árið 2009.
Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar en hún tekur gildi 1. apríl 2012.
Reglugerð um 5. br. á reglugerð nr. 403/2010