Mál nr. 67/2013, úrskurður 16. október 2013
Mál nr. 67/2013
Eiginnafn: Sigurlogi
Hinn 16. október 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 67/2013 en erindið barst nefndinni 25. september:
Eiginnafnið Sigurlogi (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sigurloga og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Sigurlogi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.