Hreindýrakvóti ársins 2023
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða fyrir árið 2023 og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun.
Alls verður heimilt að veiða 901 hreindýr á veiðitímanum, 475 kýr og 426 tarfa. Þetta er 120 hreindýrum færra en á undanförnu ári sem stafar fyrst og fremst af óvissu um talningar hreindýra vegna veðurskilyrða og tilfærslu dýra milli veiðisvæða á talningartímum.
Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.
Fyrstu tvær vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð.
Þá eru veturgamlir tarfar alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tarfa sem eru tveggja vetra og eldri.
Óheimilt er að veiða kálfa.
Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.
Líkt og fyrri ár skiptist veiðin milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í meðfylgjandi auglýsingu. Vegna gróðurskemmda og hættu á að hreindýrin leiti vestur yfir sauðfjárveikivarnarlínu við Breiðamerkurlón er lögð áhersla á að veiðar á veiðisvæði níu fari að mestu leiti fram í Suðursveit, við og vestan Kálfafellsdals.
Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.