Utanríkisráðherra skipar starfshóp um ljósleiðaramálefni
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur skipað fimm manna starfshóp um ljósleiðaramálefni, útboð ljósleiðaraþráða Atlantshafsbandalagsins og tengd málefni.
Starfshópurinn á að gera heildstæða úttekt og mat á ljósleiðaramálum á Íslandi með tilliti til þjóðaröryggis og þjóðréttarlegra skuldbindinga Íslands. Þá efnir starfshópurinn til samráðs við Atlantshafsbandalagið um hugsanlega hagnýtingu á aukagetu ljósleiðarakerfis bandalagsins hér á landi en þeir ljósleiðaraþræðir sem um ræðir eru á eignaskrá Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins. Í dag er hluti kerfisins í útleigu en sá samningur rennur út í lok næsta árs.
Að lokinni úttekt og samráði mun hópurinn skila ráðherra skýrslu með tillögum um næstu skref.
Starfshópurinn er svo skipaður:
- Haraldur Benediktsson alþingismaður sem jafnframt er formaður starfshópsins.
- Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
- Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri varnarmálasviðs Landhelgisgæslu Íslands í Keflavík.
Jóna Sólveig Elínardóttir, sérfræðingur á öryggis- og varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Ottó V. Winther, sérfræðingur á skrifstofu rafrænna samskipta í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, eru starfsmenn hópsins.