Hoppa yfir valmynd
7. júní 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki í þágu farsældar barna – framlengdur umsóknarfrestur

Frá Mývatni - myndHugi Ólafsson

Ákveðið hefur verið að framlengja til 16. júní frest félagasamtaka til að sækja um styrki til verkefna sem varða farsæld og samfélagslega virkni, þar á meðal menntun, frístundir, íþróttir, vernd og réttindi barna, í þjónustu við börn og fjölskyldur, m.a. forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir og þjónustu er miðar sérstaklega að börnum í viðkvæmri stöðu og þ.m.t. börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Félagasamtök sem hljóta styrki á fjárlögum eða eru með samninga við ráðuneytið eða stofnanir þess, vegna skilgreindra verkefna, geta ekki sótt um styrki af safnliðum fjárlaga fyrir sömu verkefni. Um er að ræða eins skiptis styrki sem eru ætlaðir sem hluti af innleiðingu laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, þar á meðal þróun heildstæðrar skólaþjónustu og undirbúnings frumvarps að nýjum lögum þess efnis.

Styrkir eru veittir þeim sem uppfylla skilyrði til að fá styrk samkvæmt mati ráðherra, sjá reglur um styrkveitingar mennta- og barnamálaráðherra. Miðað er við að styrkfjárhæðir séu á bilinu 200.000 kr. til 3.000.000 kr., en í undantekningartilvikum er unnt að veita hærri styrki.

Sótt er um styrk á [email protected]. Umsókn skulu fylgja upplýsingar um verkefnið, hvernig umsækjandi hyggst vinna verkefnið og hvort það hefur notið styrkja frá öðrum aðilum. Vakin er athygli á því að umsækjandi kann að þurfa að leggja fram frekari upplýsingar, m.a. um faglega hæfni og rekstrarhæfi, samkvæmt leiðbeiningum ráðuneytisins.

Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 16júní 2023.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti lýkur verður ekki tekin til umfjöllunar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta