Hoppa yfir valmynd
24. júlí 2007 Innviðaráðuneytið

Vestmannaeyjagöng kosta 50 til 80 milljarða króna

Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. hefur lokið mati á kostnaði við gerð jarðganga sem vegtengingu milli Vestmannaeyja og Landeyja. Niðurstaða matsins er sú að tæknilega sé mögulegt að gera slík göng og að kostnaðurinn verði líklega á bilinu 50 til 80 milljarðar króna eftir gerð ganganna en áhætta er talin mikil.

Í apríl fól Vegagerðin Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. að leggja mat á kostnað við gerð jarðganga milli lands og Eyja og fékk VST ýmsar skýrslur og gögn sem unnin hafa verið um málið á síðustu misserum og árum, bæði fyrir samgönguyfirvöld og Ægisdyr, áhugafélag um gerð jarðganga milli lands og Eyja.

Skýrsla VST er á ensku en samantekt helstu atriði hennar er á íslensku. Í henni eru töflur, myndir og teikningar sem sýna meðal annars kostnaðaráætlanir, hugsanlega legu ganganna, þversnið og innri gerð þeirra.

Miðað við 18 km göng sem yrðu steypufóðruð fyrstu þrjá kílómetrana frá Vestmannaeyjum er kostnaður talinn verða 52 milljarðar króna en verði öll göngin steypufóðruð er kostnaður áætlaður 80 milljarðar króna. Um þriðjungur þessa kostnaður er vegna óvissu, kostnaðar við hönnun og eftirlit og kostnaðar verkkaupa af vöxtum á byggingartíma, rannsókna og fleiri atriða.

Skýrsluhöfundar segja að verði ákveðið að vinna áfram að málinu yrðu næstu skref ítarlegri jarðfræðilegar og jarðtæknilegar rannsóknir sem miðuðu að því að draga úr óvissu við verkefnið. Rannsaka þyrfti berglög norðan við Heimaey og aðstæður á Landeyjasandi og afla þyrfi miklu meiri upplýsinga um berglög á fyrirhugaðri gangaleið. Eru slíkar rannsóknir taldar geta kostað allt frá 115 milljónum króna til 275 milljóna.

Í niðurlagi samantektarinnar segir meðal annars: ,,Niðurstaða mats okkar er eins og að framan segir að tæknilega sé mögulegt að gera veggöng milli lands og Eyja og að kostnaðurinn verði líklega á bilinu 50 til 80 milljarðar króna. Á hinn bóginn er álitamál sem áhöld eru eða ættu að vera um hvort nokkurn tímann geti verið réttlætanlegt að grafa og reka þetta löng jarðgöng djúpt undir sjó á jafn jarðfræðilega virku svæði og Vestmannaeyjasvæðið vissulega er og dæmin sanna.”

Fjallað verður um skýrsluna á fundi ríkisstjórnarinnar næstkomandi föstudag og í framhaldi af því verður hún gerð opinber.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta