Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 19/2024-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 19/2024

Fimmtudaginn 11. apríl 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 10. janúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. október 2023, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 20. desember 2021 og var umsóknin samþykkt 20. janúar 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. október 2023, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sökum þess að hann hefði hafnað starfi hjá B. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun eftir að kærandi sendi skýringar 27. október 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dagsettri þann sama dag, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. janúar 2024. Með bréfi, dags. 18. janúar 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. febrúar 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. febrúar 2024. Athugasemdir og viðbótargögn bárust frá kæranda 8. og 12. mars 2024 og var það sent Vinnumálastofnun til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. mars 2024. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Af kæru má ráða að kærandi sé ósáttur við ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. október 2023, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans.

Í athugasemdum kæranda, dags. 12. mars 2024, greinir kærandi ítarlega frá því að skilríkjum hans hafi verið stolið.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 20. desember 2021. Með erindi, dags. 20. janúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 9. október 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning þess efnis að kærandi hefði hafnað atvinnutilboði hjá B. Um hafi verið að ræða starf sem sendill á dekkjaverkstæði en kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf af Vinnumálastofnun. Af upplýsingum frá atvinnurekanda megi ráða að kærandi hafi lýst því yfir að hann hefði ekki áhuga á starfi yfir höfuð og þá hafi hann lýst talsverðum ranghugmyndum. Með erindi, dags. 11. október 2023, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar á ástæðum þess að hann hefði hafnað starfi hjá B. Vinnumálastofnun hafi ekki borist neinar skýringar frá kæranda og með erindi, dags. 23. október 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans væru stöðvaðar sökum þess að hann hafi hafnað starfi hjá B. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 4. mgr. 61. gr., þar sem um þriðju viðurlög hafi verið að ræða en kærandi hafi áður sætt viðurlögum þann 18. október og 21. nóvember 2022 vegna fjarveru í vinnumarkaðsaðgerð.

Þann 27. október 2023 hafi borist erindi frá kæranda, merkt, skýringarbréf. Kærandi hafi meðal annars vísað til þess að skilríkjum hans og prófskírteini hefði verið stolið. Með tilliti til nýrra gagna hafi ákvörðun stofnunarinnar, dags. 23. október 2023, verið tekin fyrir að nýju. Með erindi, dags. 27. október 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að það væri mat Vinnumálastofnunar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hans, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir leiti nýs starfs. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B. Honum hafi í kjölfarið verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 4. mgr. 61. gr. Ákvæði 1. mgr. 57. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé tekið fram að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þykja megi leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi.

Meðal almennra skilyrða fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Í virkri atvinnuleit felist meðal annars að vera reiðubúinn til að taka hverju því starfi sem greitt sé fyrir, hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi hjá B í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi ekki fært fram skýringar sem geti talist gildar í skilningi ákvæðisins. Kærandi beri því að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig 4. mgr. 61. gr.

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. október 2022, hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna fjarveru í boðað viðtal á þjónustuskrifstofu. Kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum aftur vegna sömu ástæðu þann 21. nóvember 2022. Þegar kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 23. október 2023, hafi því verið um að ræða þriðja tilfellið sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum. Því komi til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hans, sbr. 4. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt ákvæðinu skuli sá sem hafi sætt viðurlögum þrisvar sinnum á sama bótatímabili samkvæmt 29. gr. ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hafi starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Vinnumálastofnun beri því að stöðva greiðslur til kæranda.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta synjun frekari greiðslna atvinnuleysisbóta þar til að skilyrði 31. gr. verði uppfyllt, sökum þess að hann hafi hafnað starfi hjá B, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og 4. mgr. 61. gr. sömu laga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 4. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 21. september 2023 miðlað í starf hjá B. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 9. október 2023 að kærandi hefði hafnað starfinu þar sem hann hefði ekki áhuga á því. Kærandi hefur vísað til þess að ástæða þess að hann hafnaði umræddu starfi sé sú að skilríkjum og prófskírteini hans hafi verið stolið og hann þurfi tíma til þess að hafa uppi á því.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Þá segir í 4. mgr. 61. gr. að ef atvik sem lýst sé í 1. málsl. 1. mgr. endurtaki sig á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. Samkvæmt 29. gr. laga nr. 54/2006 getur sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 31. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Samkvæmt gögnum málsins hófst bótatímabil kæranda í desember 2021. Kærandi sætti niðurfellingu bótaréttar á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 þann 18. október 2022 og sætti aftur viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis þann 21. nóvember 2022. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom nú til ítrekunaráhrifa samkvæmt 4. mgr. 61. gr. laganna og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysibóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. október 2023, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta