Utanríkisráðherra tók þátt í minningarathöfn í Auschwitz
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var fulltrúi ríkisstjórnar Íslands á minningarathöfn sem haldin var í Auschwitz í dag. Þar var minnst þeirra sex milljóna gyðinga sem myrtar voru í helförinni og annarra fórnarlamba grimmilegra ofsókna nasista. Í dag er þess minnst að 80 ár eru liðin frá því að hersveitir bandamanna lögðu undir sig útrýmingarbúðirnar í Auschwitz í Póllandi og frelsuðu þá sjö þúsund fanga sem þar voru enn þá.
„Athöfnin var falleg en á sama tíma alvarleg áminning um hrikaleg örlög og þjáningu milljóna manna. Það var heiður að fá að taka þátt fyrir Íslands hönd og gríðarlega áhrifamikið að vera hér á sama tíma og eftirlifendur þessarar vítisdvalar. Lífsþróttur þeirra og kraftur í að yfirstíga miskunnarleysi helfararinnar blása okkur kjark í brjóst nú þegar mannréttindi og frelsi eiga víða í vök að verjast. Þessum hryllingsverkum má aldrei gleyma,“ segir Þorgerður Katrín.
Auschwitz-Birkenau safnið bauð til athafnarinnar sem var sótt af leiðtogum og ráðamönnum hvaðanæva úr heiminum. Má þar meðal annarra nefna Volodómír Selenskí, forseta Úkraínu, Karl Bretakonung, Friðrik Danakonung og Viktoríu krónprinsessu Svíþjóðar.
Frelsunar Auschwitz var minnst víðar í dag, meðal annars á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í New York þar sem fastafulltrúi Íslands, Anna Jóhannsdóttir, var viðstödd. Við það tækifæri minnti Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, á að Sameinuðu þjóðirnar hafi verið settar á fót til að koma í veg fyrir að atburðir eins og helförin myndu nokkru sinni endurtaka sig.