Vinnustofa um framkvæmd Reglugerðar um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu
Síðastliðinn föstudag hélt velferðarráðuneytið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Landssamtökin Þroskahjálp vinnufund með félagsmálastjórum og réttindagæslumönnum víðsvegar að á landinu. Markmiðið var að efla umræðu um framkvæmd reglugerðarinnar og skerpa skilning á innihaldi hennar. Til vinnustofunnar mættu um 40 manns og lýstu fundarmenn yfir ánægju með framtakið. Kynningarefnið frá fundinum er aðgengilegt hér á NPA vefnum þar sem þær upplýsingar sem þar koma fram hafa upplýsingagildi í tengslum framkvæmd NPA á Íslandi.