Hoppa yfir valmynd
19. mars 2009 Innviðaráðuneytið

Breytingar á reglugerðum um skírteini

Tilbúin eru drög að reglugerð um breytingu á nokkrum reglugerðum um skírteini útgefnum af Flugmálastjórn Íslands. Óskað er umsagnar hagsmunaaðila á netfangið [email protected] í síðasta lagi fyrir 3. apríl næstkomandi.

Um er að ræða breytingar á reglugerð um skírteini útgefnum af Flugmálastjórn Íslands nr. 400/2008, reglugerð um skírteini flugliða á flugvél, nr. 401/2008 og reglugerð um skírteini flugumferðarstjóra, nr. 404/2008

Breytingarnar lúta flestar að leiðréttingum og minniháttar breytingum á orðalagi.

Vakin er athygli á því að með breytingum á reglugerð nr. 400/2008 eru felld inn ákvæði reglugerðar um skráningu flugtíma, nr. 90/1977. Fellur sú reglugerð niður með þessum breytingum.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta