Hoppa yfir valmynd
5. nóvember 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ný nálgun á samstarf atvinnulífs og stjórnvalda í loftslagsmálum með þjónustusamningi við Grænvang

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs. - myndEyþór Árnason

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði á Umhverfisþingi í dag þjónustusamning umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins við Grænvang um mótun samstarfs um loftslagsaðgerðir stjórnvalda og atvinnulífs. Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, undirritaði samninginn fyrir hönd Grænvangs.

Markmið verkefnisins er að móta og þróa samstarf milli stjórnvalda og atvinnulífs um innleiðingu loftslagsaðgerða og verður verkefnið unnið á grundvelli nýrrar aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum og með hliðsjón af Loftslagsvegvísum atvinnulífsins.

Forsenda árangurs í loftslagsaðgerðum á Íslandi er öflugt samstarf stjórnvalda og atvinnulífs. Samningurinn við Grænvang felur í sér að vettvanginum verður, með stuðningi sérfræðinga ráðuneytisins og undirstofnanna þess, falin innleiðing á samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs vegna tiltekinnar aðgerðar úr aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, sem er á málefnasviði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Samhliða því mun Grænvangur veita ráðgjöf og greiningu á tækifærum til samstarfs og móta og þróa aðferðarfræði sem heimfæra megi á aðrar aðgerðir í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

Þá verður Grænvangi falið að styðja við og leiða samskipti við hagaðila, en ráðuneytið mun styðja við kynningu verkefnisins gagnvart hagaðilum.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Það er afar mikilvægt að hraða allri vinnu við að afla grænnar orku og draga þannig úr losun gróðurhúsalofttegunda svo að við náum markmiðum Íslands um lágkolefnishagkerfi. Grænvangur er mikilvægur samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífsins svo feta megi farsælustu leiðirnar í átt að markmiðum á sviði loftslagsmál. Við hlökkum til að vinna með Grænvangi við að leiða saman og efla alla hagaðila á loftslagsvegferðinni.“

Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs: „Stjórnvöld hafa unnið af metnaði að uppfærslu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum og eins liggur öflug vinna að baki loftslagvegvísum atvinnulífsins. Það er gríðarlega spennandi verkefni að þróa og móta samstarf stjórnvalda og atvinnulífs byggt á þessum góða grunni. Loftslagsmál eru hópíþrótt og við trúum því að með nýrri nálgun megi hraða aðgerðum og auka árangur af þeim Íslandi til heilla.“

Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda sem stuðlar að framþróun í loftslagsmálum og grænum lausnum og er hlutverk vettvangsins að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðja við markmið íslenskra stjórnvalda um lágkolefnis hagkerfi. Bakland Grænvangs samanstendur af íslenskum stjórnvöldum og leiðtogum atvinnulífsins í loftslagsmálum og gerðist forseti Íslands, Halla Tómasdóttir nýlega verndari Grænvangs.

 

 


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta