Innanríkisráðherra skipar rannsóknarnefnd samgönguslysa
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur tekið til starfa samkvæmt lögum nr. 18/2013 sem samþykkt voru á Alþingi síðastliðið vor. Með lögunum sem tóku gildi 1. júní er starfsemi rannsóknarnefndar flugslysa, rannsóknarnefndar sjóslysa og rannsóknarnefndar umferðarslysa sameinuð og falla lög um nefndirnar þrjár þar með úr gildi.
![Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur skipað Geirþrúði Alfreðsdóttur formann rannsóknarnefndar samgönguslysa.](/media/innanrikisraduneyti-media/media/frettir-2013/_MG_9917a.jpg?proc=singleNewsItem)
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur nú skipað í nefndina og er Geirþrúður Alfreðsdóttir, flugstjóri og vélaverkfræðingur, formaður nefndarinnar.
Aðrir nefndarmenn eru:
- Ásdís J. Rafnar hæstaréttarlögmaður,
- Bryndís Torfadóttir flugstjóri,
- Brynjólfur Mogensen læknir,
- Gestur Gunnarsson flugvirki,
- Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna,
- Ingi Tryggvason lögfræðingur.
Varamenn eru:
- Haraldur Sigþórsson verkfræðingur,
- Hjörtur Emilsson skipatæknifræðingur,
- Hörður Vignir Arilíusson flugumferðarstjóri,
- Inga Hersteinsdóttir verkfræðingur,
- Pálmi Kr. Jónsson, vélfræðingur.
- Tómas Davíð Þorsteinsson framkvæmdastjóri.
Markmið laganna um rannsóknarnefnd samgönguslysa er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa en ekki að skipta sök eða ábyrgð segir í fyrstu grein frumvarpsins. Er hún sambærileg grein sama efnis og í eldri lögum um rannsóknir flugslysa, sjóslysa og umferðarslysa nema orðalagi er breytt þar sem hún nær yfir öll slys í samgöngum.