Mál nr. 81/2013, úrskurður 29. nóvember 2013
Mál nr. 81/2013
Eiginnafn: Ævör
Hinn 29. nóvember 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 81/2013 en erindið barst nefndinni 27. nóvember:
Eiginnafnið Ævör (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ævarar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ævör (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.