Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2016 Dómsmálaráðuneytið

Frestur vegna endurveitingar ríkisborgararéttar rennur út 1. júlí

Vakin er athygli á því að frestur til að óska eftir endurveitingu íslensks ríkisborgararéttar samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögum um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952 rennur út 1. júlí 2016. Bráðabirgðaákvæðið kom inn í lögin með breytingu árið 2012.

Samkvæmt ákvæðinu getur sá sem tók ríkisfang í öðru ríki fyrir 1. júlí 2003, og missti við það íslenska ríkisfangið án þess að viðkomandi ríki hafi krafist þess, óskað eftir því að fá íslenska ríkisborgararéttinn að nýju með því að sækja um það til Útlendingastofnunar. Umsækjandi þarf að hafa verið búsettur á Íslandi eða uppfylla skilyrði um dvöl hér samkvæmt 12. gr. laganna.

Nánari upplýsingar um endurveitingu íslensks ríkisborgararéttar má nálgast á vef Útlendingastofnunar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta