Heimahjúkrun og þjónusta aukin á Akranesi
Sjúkrahúsið og heilsugæslan á Akranesi (SHA) og Akraneskaupstaður stefna að því að endurskipuleggja sameiginlega heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu í bænum. Hefur verið skipaður starfshópur á vegum SHA og Akraneskaupstaðar sem endurskipuleggja á þessa þjónustu, þ.e. bæði heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu. Markmiðið er að bæta aðhlynningu þeirra sem búa heima og tryggja samfelldari og betri þjónustu.
Sjá nánar á vefsíðu SHA: http://www.sha.is/