Hoppa yfir valmynd
18. mars 2020 Utanríkisráðuneytið

Brýnt að halda áfram lífsbjargandi aðgerðum

Kórónaveiran hefur nú breiðst út til rúmlega 140 landa. Sumar þjóðanna sem glíma við veiruna áttu fyrir í harðri lífsbaráttu vegna vopnaðra átaka, náttúruhamfara og afleiðinga loftslagsbreytinga. Jens Laerke, talsmaður skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um samræmdar aðgerðir í mannúðarmálum (OCHA) segir brýnt að haldið verði áfram lífsbjargandi aðgerðum í löndum sem nú fá kórónaveiruna í fangið ofan á annað.

Jens segir gífurlega mikilvægt að haldið verði áfram að sinna mannúðarstörfum í heiminum, að enginn verði skilinn útundan og allir taki höndum saman, í samræmi við ákall Sameinuðu þjóðanna, um alþjóðlega samstöðu. Rúmlega eitt hundrað milljónir manna reiða sig á mannúðaraðstoð Sameinuðu þjóðanna og talsmaður OCHA segir í forgangi að tryggja áframhaldandi stuðning samhliða því að bregðast við útbreiðslu kórónaveirunnar.

Starfsfólk OCHA í Genf vinnur að samhæfingu á aðgerðum mannúðaraðstoðar, meðal annars upplýsingagjöf í þeim tilgangi að styrkja þær þjóðir þróunarríkja sem þegar eru farnar að glíma við COVID-19 eða eiga það eftir, ef að líkum lætur.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur óskað eftir fjárstuðningi, 675 milljónum bandarískra dala, vegna viðbragða við kórónaveirunni. OCHA vinnur náið með WHO og öðrum mannúðarsamtökum að samræmdri fjáröflun vegna aðgerða sem þarf að grípa til vegna COVID-19.

Frétt OCHA

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta