Mál nr. 41/2014, úrskurður 21. maí 2014
Mál nr. 41/2014
Eiginnafn: Mímósa
Hinn 21. maí 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 41/2014 en erindið barst nefndinni 20. maí:
Eiginnafnið Mímósa (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Mímósu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Mímósa (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.