Hoppa yfir valmynd
26. september 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 454/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 26. september 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 454/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19070031 og KNU19070030

Kæra [...],

[...],

og barns þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. júlí 2019 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir K) og [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 1. júlí 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barns þeirra, [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir A) um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 17. desember 2018. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför þeirra höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 16. janúar 2019 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 8. mars 2019 kom fram að K hefði verið veitt alþjóðleg vernd þann 22. nóvember 2017 og væri með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 22.desember 2020. Samkvæmt Eurodac gagnagrunni liggur ljóst fyrir að M hafi verið veitt alþjóðleg vernd 19. október 2015. M kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun hafa dvalarleyfi sem sé enn í gildi. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. dagana 15. apríl og 17. apríl 2019 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 1. júlí 2019 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 2. júlí 2019 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 12. júlí 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 15. júlí 2019.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefðu kærendur ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins A kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra hans, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum hans væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að þau hafi búið við bágbornar aðstæður í Grikklandi og að skortur hafi verið á stuðningi grískra yfirvalda hvar varðar tækifæri til atvinnu, leigu á húsnæði og félagslega aðstoð. Kærendur hafi aðallega búið í tjaldi eða gist í húsnæði vinafólks. Kærendur kveði sig hrædd við að verða fyrir aðkasti og fordómum vegna uppruna síns og [...]. Kærendur kveða að enga atvinnu hafi verið að fá í Grikklandi þar sem þau hafi ekki kunnað grísku og að þeim hafi ekki staðið til boða að fara í tungumálaskóla. Þá kemur fram að M hafi unnið tímabundið við ólífutínslu á svörtum markaði. Þá hafi kærendur ekki fengið framfærslu frá félagsmálayfirvöldum heldur framfleytt sér með fjármagni frá fjölskyldu M í heimaríki þeirra. K kveður að ástand og lífsskilyrði í Grikklandi hafi haft slæm áhrif á andlega heilsu hennar sem og ástandið [...] þar sem hún hafi horft upp á marga einstaklinga vera drepna. Jafnframt hafi móðir K látist í heimaríki sökum veikinda. K kveðst hafa sótt læknisþjónustu í viðtökuríki einu sinni eftir að hún hafi orðið barnshafandi. Þá hafi hún ekki getað sótt frekari læknisþjónustu vegna þungunar sinnar þar sem hún hafi ekki haft efni á samgöngum. Þá kemur fram að M og K hafi eignast barnið A [...] hér á landi.

Krafa kærenda er í fyrsta lagi byggð á því að taka skuli mál þeirra til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjalla kærendur almennt um og gera grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum. Kærendur fjalla auk þess um reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Kærendur vísa í þessum efnum til 2. mgr. 32. gr. a. reglugerðar um útlendinga, auk tveggja nánar tilgreindra úrskurða kærunefndar um túlkun á því ákvæði. Kærendur telji sig falla í hóp sérstaklega viðkvæmra einstaklinga sem leiði til þess að þau muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Einnig muni þau verða fyrir alvarlegri mismunun við endursendingu til Grikklands. Þá benda kærendur á að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila eða ekki. Kærendur óski sérstaklega eftir því að tekið verði tillit til þeirrar verndar sem A hefur rétt á samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskum lögum og öðrum reglum sem íslensk stjórnvöld eru bundin af þjóðarétti að virða. Kærendur telji líklegt að A muni búa við óöryggi sökum heimilisleysis í Grikklandi og litlar líkur á að þau geti séð honum farboða auk þess sem hann muni alast upp í umhverfi þar sem niðurlæging á grundvelli fordóma sé viðvarandi.

Þá byggja kærendur kröfu sína um efnismeðferð í öðru lagi á því að þau njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, eða banni við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu. Telja kærendur að aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi ákvæðisins og samræmist skilgreiningunni á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Því beri að taka umsóknir kærenda til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kærenda koma fram athugasemdir við málsmeðferð og ákvörðun Útlendingastofnunar þess efnis að kærendur hafi ekki sýnt fram á að þeim sé ekki aðgengileg þjónusta í viðtökuríki. Í því samhengi vísa kærendur til viðtals hjá Útlendingastofnun þar sem fram komi skýringar á þeirri mismunun sem kærendur telja sig hafa orðið fyrir í viðtökuríki ásamt heimildum sem fram komi í greinargerð kærenda til Útlendingastofnunar um aðstæður í Grikklandi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barna kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur yfirfarið gögn málsins, þ.m.t. viðtöl við kærendur og er það mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var K veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 22. nóvember 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 22. desember 2020. M var veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 19. október 2015 og kveður að hann hafi gilt dvalarleyfi þar í landi. Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér bera ekki annað með sér en að A, sem er fæddur hér á landi, hafi aðgang að sambærilegri vernd í Grikklandi og kærendur. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Kærendur eru hjón með eitt barn, A . A fæddist hér á landi [...] og bera gögn málsins ekki annað með sér en að hann sé við góða heilsu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu en að stríð í heimaríki hafi haft áhrif á andlega heilsu hans. Þá kveðst M hafa farið einu sinni til læknis hér landi vegna [...] og fengið lyf vegna þess. Í viðtali K hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að aðstæður í heimaríki hafi haft slæm áhrif á andlega heilsu hennar en líðan hennar sé betri eftir að hún giftist M og eignaðist A. Engin læknisfræðileg gögn hafa verið lögð fram við meðferð málsins.

Það er mat kærunefndar að framangreind gögn beri ekki með sér að fjölskyldan hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laganna um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins. Mat á aðstæðum fjölskyldunnar tekur þó mið af ungum aldri A, sbr. framangreind ákvæði laga um ákvarðanir sem varða börn.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

• 2018 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 21. júní 2019);

• 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);

• Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

• Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);

• Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);

• ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);

• EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

• Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);

• Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);

• Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);

• Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);

• Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

• State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);

• Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);

• Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og

• World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af framangreindum gögnum verður að ráðið grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Í nýjustu ársskýrslu gagnagrunns Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga, Asylum Information Database, kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi fundið fyrir erfiðleikum með að fá viðunandi heilbrigðisþjónustu og á það einkum við um einstaklinga sem tilheyra sérstaklega viðkvæmum hópum. Þá segir á vefsvæði alþjóðasamtakanna Doctors of the World að árið 2016 hafi samtökin hrint af stað herferð með það að markmiði að bæta mæðravernd til flóttakvenna í Grikklandi. Einnig kemur fram að þrátt fyrir að margt hafi áunnist í þeim efnum eigi þungaðar konur enn á hættu að fá ekki fullnægjandi mæðravernd og ungbarnavernd þar í landi. Þá geti flóttafólk leitað til alþjóðasamtaka og frjálsra félagasamtaka í Grikklandi sem m.a. veiti nýbökuðum mæðrum og ungabörnum viðeigandi aðstoð, t.a.m. upplýsingar og aðstoð í tengslum við brjóstagjöf og næringu. Jafnframt útvegi þau barnaföt, bleyjur og annan búnað til að koma til móts við þarfir þeirra, aðstoðin sé þó háð takmörkunum.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Í skýrslu Asylum information database kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Gögn málsins benda þó til þess að ekki öll börn sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sæki skóla vegna ýmissa hindrana, svo sem tungumálaerfiðleika. Þá þurfi börnin að vera bólusett svo þau hafi aðgengi að skólanum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt framangreindum gögnum fá einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi útgefið dvalarleyfi til þriggja ára. Handhafar dvalarleyfis skulu sækja um endurnýjun að minnsta kosti mánuði áður en það rennur út en venjulega tekur um tvo til sex mánuði að fá endurnýjun. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint bera framangreindar skýrslur ekki með sér að slíkt eitt og sér hafi í för með sér að umsókninni verði synjað. Við endurnýjun dvalarleyfis fer fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins auk þess sem lagt er mat á hvort breyting hafi orðið á stöðu hans. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun á hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun. Vottorðið veitir einstaklingnum sama rétt og gilt dvalarleyfi veitir en þess eru þó dæmi að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera.

Í fyrrnefndri ársskýrslu Asylum information database kemur fram að fæðingu barns beri að skrásetja hjá viðeigandi sveitarfélagi og að við skráninguna þurfi að framvísa fæðingarvottorði barns og dvalarleyfis a.m.k. eins foreldris. Þá kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi geti sótt um sameiningu við fjölskyldumeðlimi. Handhafi alþjóðlegrar verndar sem sækir um fjölskyldusameiningu við barn undir 18 ára aldri þarf hvorki að sækja um innan ákveðins tímaramma frá því viðkomandi öðlaðist vernd eða sýna fram á lágmarkstekjur.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu hjá kærendum að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða að þær samrýmist skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærendur njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kærenda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Kærendur hafa m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli þeirra þar sem þau hafi ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Þá hafi þau upplifað fordóma þar. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur hafa heimild til að stunda atvinnu á Grikklandi og eigi rétt á félagslegri aðstoð með sömu skilyrðum og takmörkunum og grískir ríkisborgarar. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Fyrir liggur að kærendur eru heilsuhraust og vinnufær hjón með ungt barn. Telur kærunefnd því ekki að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra séu þess eðlis að önnur sjónarmið eigi að gilda í málum þeirra en að framan hafa verið rakin.

Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærendur geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði þau fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Eins og að framan greinir hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar sambærilegan aðgang að lögum að félagsþjónustu á vegum gríska ríkisins og grískir ríkisborgarar. Hindranir sem einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar þar kunna að þurfa að yfirstíga til að fá aðgang að umræddri þjónustu fela að mati nefndarinnar ekki í sér alvarlega mismunun. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærendur og barn þeirra muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a. reglugerðar um útlendinga.

Af gögnum málsins um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur og barn þeirra eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ.á.m. nauðsynlegum lyfjum og bólusetningum fyrir A. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að þau geti fengið viðhlítandi heilbrigðisaðstoð í Grikklandi. Kærunefnd telur að gögn málsins ekki benda til þess að kærendur glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a. reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í málum kærenda og barns þeirra er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að þau geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Grikklandi að lögum sama rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið eru kærendur handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi. Þá hafa þau dvalið í Grikklandi um árabil og komu hingað í sameiningu. Þá verður ráðið af fyrirliggjandi gögnum að barn kærenda, A, geti fengið dvalarleyfi í Grikklandi vegna stöðu foreldra sinna þar í landi. Kærunefnd leggur því til grundvallar að úrræði séu í boði fyrir kærendur að því er varðar stöðu sonar þeirra, A, sem er fæddur hér á landi. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreinda upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málsins að flutningur kærenda til Grikklands muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn barns kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kærenda að umsókn þess verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna athugasemdar í greinargerð kærenda tekur kærunefnd fram að aðstæður kærenda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018 og nr. 110/2019 frá 26. mars 2019. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kærenda við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum, einkum þar sem um var að ræða barnshafandi konur.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun dagana 15. og 17. apríl 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að þau hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 17. desember 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum máls komu kærendur hingað til lands þann 16. desember 2018 og sóttu um alþjóðlega vernd þann 17. desember s.á. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kærendum er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kærenda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                            Árni Helgason

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta