Ráðstefna um konur og siglingar á alþjóðasiglingadeginum
Í ár er Alþjóðasiglingadagurinn helgaður konum undir yfirskriftinni „Empowering women in the Maritime community“. Af því tilefni standa samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Siglingaráð og fyrir ráðstefnu um konur og siglingar fimmtudaginn 26. september 2019 undir yfirskriftinni Hvað er svona merkilegt við það?
Í engri starfsstétt á Íslandi er hlutfall kvenna jafnlágt og á sjó. Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á fjölbreyttum atvinnumöguleikum í siglingum jafnt fyrir konur og karla. Á ráðstefnunni munu innlendir og erlendir fyrirlesarar fjalla um sögu íslenskra kvenna á sjó, segja frá starfsvali sínu og deila sinni reynslu af samvinnu og sambúð kynjanna í siglingum. Þá verður leitað svara við því hvers vegna konur eru svo fáar til sjós og í siglingum og hvernig megi gera störf til sjávar eftirsóknarverð fyrir konur. Forseti Íslands opnar ráðstefnuna og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra flytur lokaávarp.
Ráðstefnan verður haldin í Kaldalóni í Hörpu og er opin öllum. Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
Dagskrá:
- 13:00 - Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson setur ráðstefnuna.
- „Women in the Maritime Community.“
Joanna Nonan, aðmíráll í bandarísku strandgæslunni (Rear Admiral US Coast guard).
- „All Aboard: Icelandic Women, Equality and Opportunity at Sea“
Margaret Willson, mannfræðingur og prófessor við Washington-háskóla.
- Átakið #kvennastarf“
Jón Hjalti Ásmundsson, skólastjóri Skipstjórnar- og véltækniskólans.
- 14:30 - Hlé
- „Í blíðu og stríðu. Reynslusaga konu til sjós.“
Jónína Hansen, stýrimaður.
- „Vélfræði, sálfræði, stjórnun.“
J. Snæfríður Einarsdóttir, vélfræðingur og ráðgjafi hjá HSE Consulting.
- „Sjómannslífið.“
Heiðveig María Einarsdóttir, sjómaður og viðskiptalögfræðingur.
- „Af hverju ekki ég.“
Halldóra Kristín Unnarsdóttir, strandveiðikona af Snæfellsnesi
- Samantekt: Af hverju eru ekki fleiri konur á sjó?
- 16:00 - Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flytur lokaorð og slítur ráðstefnu.