Hoppa yfir valmynd
26. október 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Ígræðsla líffæra flyst til Gautaborgar

Í dag var undirritaður samningur um ígræðslu líffæra við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg. Þetta þýðir að líffæraígræðslur Íslendinga flytjast frá Kaupmannahöfn til Gautaborgar um áramótin.

Samningurinn var gerður að ósk heilbrigðisráðuneytisins eftir ráðgjöf frá Líffæraígræðslunefnd sem lagði til að gengið yrði til samninga við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg um líffæratöku og ígræðslu líffæra fyrir íslenska sjúklinga. Fulltrúi Sjúkratrygginga Íslands undirritaði samninginn fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda hér en af hálfu háskólasjúkrahússins í Gautaborg er það Sahlgrenska International Care AB, og Sahlgrenska I.C. sem formlega gera samninginn. Hann er gerður að undangengnum samningaviðræðum við helstu sjúkrahús á Norðurlöndunum, hann gildir til 2010 og er til eins árs í senn, en framlengist sjálfkrafa um ár sé honum ekki sagt upp sex mánuðum áður en hann á að renna úr gildi. Samningur sem hefur verið í gildi um ígræðslu líffæra við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn rennur úr gildi um áramótin.

Með samningnum er íslenskum sjúklingum tryggður lágmarksbiðtími eftir ígræðslu líffæra. Biðtími samkvæmt honum er mun styttri en var í fyrri samningi og kostnaður við nýjan samning miðað við tilteknar forsendur um þörf fyrir líffæri er rúmar sex hundruð milljónir króna næstu fimm árin. Gert er ráð fyrir að samningurinn við Sahlgrenska verði um 18% ódýrari en samningurinn sem nú er í gildi.

Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Marika Qvist, framkvæmdastjóri Sahlgrenska I.C. í Gautaborg skrifuðu undir samninginn sem Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, staðfesti með undirskrift sinni.

Undiritun samnings um ígræðslu líffæra við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg

Steingrímur Ari Arason, Álfheiður Ingadóttir og Marika Qvist undirrita samninginn um ígræðslu líffæra í heilbrigðisráðuneytinu í dag.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta