Hoppa yfir valmynd
26. ágúst 2021 Innviðaráðuneytið

Drög að nýrri reglugerð um umhverfismat í Samráðsgátt

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri reglugerð um mat á umhverfisáhrifum.

Með nýjum heildarlögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana var sameinuð löggjöf um annars vegar mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og hins vegar löggjöf um umhverfismat áætlana. Drögin að reglugerðinni byggja á framangreindum lögum þar sem markmiðið var m.a. að tryggja þátttökuréttindi almennings og að setja fram skýrar og einfaldar málsmeðferðarreglur. Drögin fela m.a. í sér nánari útfærslu á ákvæðum laganna um forsamráð og samþætta málsmeðferð og skyldur ábyrgðaraðila áætlana og framkvæmdaaðila hvað varðar skil á gögnum og innihald þeirra.

Í drögunum er einnig mælt fyrir um stafræna gagna- og samráðsgátt, sem er ætlað að vera vettvangur samráðs um umhverfismat, skipulagsmál og leyfisveitingar. Ákvæðið kemur til framkvæmda 1. desember 2022, en samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana taka eldri lög til þeirra kynninga og samráðs sem eiga sér stað fram til 1. desember 2022. Ákvæði reglugerðarinnar um samráð og kynningu umhverfismats taka mið af framangreindu bráðabirgðaákvæði og munu því  koma til endurskoðunar fyrir 1. desember 2022.

Drög að reglugerð um umhverfismat framkvæmda og áætlana

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta