Hoppa yfir valmynd
15. júní 2017 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherrar Eystrasaltsráðsins funda í Reykjavík

Merki formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu. - mynd
Utanríkisráðherrar aðildarríkja Eystrasaltsráðsins funda í Reykjavík 20. júní næstkomandi í boði Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra til að marka lok formennsku Íslands í ráðinu 2016-2017. Auk ráðherra aðildarríkjanna 11, tekur fulltrúi Evrópusambandsins þátt í fundinum.

Á meðal fundarefna verða framtíð svæðisins, svæðisbundin innleiðing heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, almannavarnir og samstarf um rannsóknir og nýsköpun. Þá verða áherslumál formennsku Íslands til umræðu, en þau varða réttindi barna, lýðræði og jafnrétti.

Eystrasaltsráðið var stofnað fyrir réttum 25 árum en aðildarríki þess eru Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin þrjú, Þýskaland, Pólland og Rússland.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta