Hoppa yfir valmynd
28. júní 2012 Dómsmálaráðuneytið

Yfirlýsing innanríkisráðherra vegna aðstoðar í kjörklefa við kosningar

Hér fer á eftir yfirlýsing innanríkisráðherra vegna einstaklinga sem þurfa aðstoðar við í kjörklefa í kosningum.

Fyrir kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 kom fram krafa af hálfu Blindrafélagsins um að einstaklingar sem þyrftu aðstoðar við í kjörklefanum gætu fengið aðstoðarmann að eigin vali sér til hjálpar í stað þess að fá aðstoð í einrúmi frá fulltrúa kjörstjórnar sem bundinn væri þagnarheiti eins og kveðið er á um í lögum. Var þessi krafa m.a. gerð með skírskotun til þess hve þessar kosningar væru frábrugðnar hefðbundnum kosningum. Á þessum tíma var ég ábyrgur fyrir framkvæmd kosningarinnar sem ráðherra dómsmála á sama hátt og ég er nú gagnvart framkvæmd forsetakosninganna sem innanríkisráðherra.

Niðurstaða mín varð sú fyrir kosningarnar til stjórnlagaþings að ráðuneytið, með skírskotun til 29. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sendi frá sér tilkynningu tíu dögum fyrir kjördag til kjörstjóra vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar um að blindir kjósendur mættu koma með aðstoðarmann að sínu vali til þess að fylla út kjörseðilinn. Jafnframt sendi ráðuneytið frá sér aðra tilkynningu daginn fyrir kjördag um að blindir, sjónskertir og þeim sem ekki gætu fyllt út kjörseðil með eigin hendi væri heimilt að hafa með sér aðstoðarmann að eigin vali sér til aðstoðar í kjördeild. Aðstoðarmaðurinn mundi undirrita sérstakt heiti hjá kjörstjóra og því væri ekki þörf á að fulltrúi kjörstjórnar væri einnig viðstaddur í kjörklefanum. Rökin fyrir þessum tilkynningum ráðuneytisins voru þau að um gjörólíka kosningu væri að ræða miðað við hefðbundnar kosningar hér á landi t.d. hvað varðar fyrirkomulag, mikinn fjölda frambjóðenda og flókins kjörseðils.

Þessi niðurstaða þótti ásættanleg af hálfu flestra hlutaðeigandi og leit ég svo á að þessi tilhögun gæti haldist áfram. Þetta skýrir andvaraleysi mitt gagnvart nauðsyn lagabreytinga strax til að nálgast þau markmið sem Blindrafélagið og fleiri vildu ná og ég fyrir mitt leyti er sammála.

Eins og kunnugt er ógilti Hæstiréttur kosningarnar til stjórnlagaþings með ákvörðun sinni 25. janúar 2011 en þar kom skýrt fram að það væri ekki á færi stjórnvalda að víkja frá skýrum fyrirmælum laga um framkvæmd kosninga. Í lögum um framboð og kjör forseta Íslands er kveðið á um að ákvæði laga um kosningar til Alþingis gildi við forsetakosningar. Í síðarnefndu lögunum er kveðið á um hvernig veita megi fötluðum aðstoð í forsetakosningum. Ljóst er að það er ekki á færi ráðherra að víkja þeim lagaákvæðum til hliðar. Slíkt gæti valdið ógildi kosninganna.

Af þessum sökum er því miður ekki unnt að verða við kröfum um að fatlað fólk sem þarf aðstoðar við í kjörklefa fái þá aðstoð á annan hátt en skilgreint er í lögum. Í haust mun ég þegar í þingbyrjun leggja fram frumvarp þessu til breytingar og hafa til hliðsjónar breytingar sem Danir og Svíar hafa gert á sínum kosningalögum til samræmis við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en þeir einir Norðurlandaþjóðanna hafa fullgillt samninginn.

Af þessu tilefni vil ég biðja fatlaða einstaklinga sem telja nú á sér brotið afsökunar á því að lögunum hafi ekki þegar verið breytt en framangreint er skýring á því hvers vegna málum er háttað eins og raun ber vitni.

Reykjavík 28. júní 2012

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta