Göngubrú og samgöngustígur opnuð í Mosfellsbæ
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra opnaði í gær formlega göngubrú við Krikahverfi í Mosfellsbæ og samgöngustíg meðfram Vesturlandsvegi. Hann naut aðstoðar Hreins Haraldssonar vegamálastjóra og Haraldar Sverrissonar bæjarstjóra í Mosfellsbæ.
Klippt var á borð á báðum stöðum og setti blíðskaparveður mark sitt á klippingarnar sem og söngur barna úr Krikaskóla. Verkið felst í gerð 60 m langrar göngubrúar yfir Vesturlandsveginn við Krikahvefi í Mosfellsbæ. Í verkinu er einnig innifalin gerð göngustíga til að tengja mannvirkið við stígakerfi Mosfellsbæjar ásamt landmótun. Verkið er unnið í samvinnu við Mosfellsbæ sem annaðist malbikun stíga og ýmsan umhverfisfrágang.
Stofnstígur meðfram Vesturlandsvegi er samvinnuverkefni Mosfellsbæjar og Vegagerðarinnar þar sem hvor aðili um sig greiðir 50% kostnaðar. Fyrsti áfangi framkvæmdarinnar sem nú er verið að taka í notkun er um 1.300 m langur stígur sem nær frá Litlaskógi við Hlíðartún og að Hamrahlíðarskógi.