Starfsemi stofnana á landsbyggðinni efld
Starfsemi stofnana á landsbyggðinni efld
Áætlun hefur verið gerð til að fjölga starfsmönnum stofnana á landsbyggðinni sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Sett hafa verið fram tölusett markmið um fjölgun árin 2021, 2023 og 2025. Þá munu sömu stofnanir leitast við að ná fram hagræði í rekstri með að hafa starfsstöðvar í sama húsnæði. Jafnframt munu þær bjóða starfsmönnum sínum upp á aukinn sveigjanleika varðandi val á starfsstöð. Bæði Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun munu á næstu þremur árum ráða í nýjar stöður tengdar fiskeldi á Austurlandi og á Vestfjörðum.
Þetta er meðal helstu atriða sem fram koma í áætlun um eflingu starfsemi stofnana sem heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fram til ársins 2025. Þær stofnanir eru Fiskistofa, Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun. Um er að ræða verkefni sem unnið hefur verið að frá því í haust að frumkvæði Kristjáns Þór Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Áætlunin var unnin í samráði við forstöðumenn þeirra stofnanna sem átakið nær til og undirritað af sömu aðilum. Í áætluninni eru bæði sameiginlegar áherslur og tölusett markmið en sérstakur stýrihópur ráðuneytisins og forstöðumanna stofnana hefur verið falið að tryggja framkvæmd hennar og verður árangur hennar metinn árlega.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun ráðstafa 50 milljónum króna af verkefnafé ráðuneytisins til þessa verkefnis á árinu 2020.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
„Þessi áætlun er afrakstur vinnu sem ég setti af stað sl. haust og var unnið að útfærslu hennar í samráði við forstöðumenn þeirra stofnana sem að því koma. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem slíkt áætlun er unnið og fjármögnuð með þessum hætti og ég bind vonir við að afrakstur þess verði til þess að efla þjónustu hins opinbera á landsbyggðinni og um leið styrkja atvinnulífið á landsbyggðinni til hagsbóta fyrir samfélagið allt.“
Undirritað eintak af áætluninni má sjá hér en þær aðgerðir sem stofnanirnar munu vinna með ráðuneytinu eru eftirfarandi:
- Stofnanir ráðuneytisins og MATÍS ohf. munu leitast við að ná fram hagræði í rekstri með að starfsstöðvar verði í sama húsnæði.
- Stofnanir ráðuneytisins og MATÍS ohf. munu bjóða starfsmönnum upp á aukinn sveigjanleika varðandi starfsstöðvar. Störf sem ekki eru staðbundin verði að jafnaði auglýst með valmöguleika um staðsetningu á fleiri en einni starfsstöð að gættum markmiðum um eflingu starfsstöðva á landsbyggðinni.
- Stofnanir ráðuneytisins og MATÍS ohf. munu leitast við að efla samstarf við Háskólann á Akureyri og háskólasetur Háskóla Íslands á landsbyggðinni.
- Reglulega verði kannað hvort starfsmenn hafi áhuga á því að skipta um starfsstöð og þannig stutt við markmið um eflingu starfstöðva á landsbyggðinni.
- Í árslok 2024 verði 10% auglýstra starfa án staðsetningar til samræmis við byggðaáætlun.
- Hafrannsóknastofnun mun á næstu þremur árum ráða í nýjar stöður tengdar fiskeldi á Austurlandi og á Vestfjörðum.
- Matvælastofnun mun koma á fót sérstakri starfseiningu um fiskeldi innan stofnunarinnar. Stofnunin mun á næstu þremur árum ráða í ný störf á því sviði á Austurlandi og á Vestfjörðum.
- MATÍS ohf. mun vinna eftir þeirri stefnu sem félagið hefur sett sér um aukið samstarf við einstök fyrirtæki í matvælaframleiðslu sem getur orðið til að auka starfsemi félagsins á landsbyggðinni.
- Innan fimm ára fjölgi störfum hjá stofnunum ráðuneytisins úr 6 í 14 á Austurlandi úr 41 í 57 á Norðurlandi og úr 10 í 22 á Vestfjörðum. Það gerist einkum með starfsmannaveltu og nýju störfum. Stofnanir ráðuneytisins styðja við markmið ráðherra um fjölgun starfa á landsbyggðinni ogmunu leggja sig fram um að þau náist.
- Ráðuneytið mun horfa til þess við forgangsröðun fjármuna og mótun áherslna í fjárveitingarbréfum að stutt sé við aðgerðir samkvæmt áætlun þessari.
- Í töflu hér á eftir eru sett fram töluleg markmið um fjölda starfa stofnana ráðuneytisins á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. Horft verði til þess að fjölgun starfa þar verði ekki á kostnað annarra landshluta utan höfuðborgarsvæðisins.
Töluleg markmið um störf Hafrannsóknastofnunar, Matvælastofnunar og Fiskistofu á Austurlandi, Norðurlandi og Vestfjörðum 2019-2025:
Svæði |
2019 |
2021 |
2023 |
2025 |
Austurland |
6 |
10 |
12 |
14 |
Norðurland |
41 |
47 |
52 |
57 |
Vestfirðir |
10 |
17 |
20 |
22 |