Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2003 Innviðaráðuneytið

Samið verður við grænlensk stjórnvöld um að hefja á ný flug á milli Íslands og Suður-Grænlands

Þann 10. september s.l. samþykkti ríkisstjórnin 8,5 milljóna króna framlag á ári til þriggja ára samnings við grænlensku landsstjórnina um flug Flugfélags Íslands á milli Íslands og Narsarsuaq.

Landsstjórnin hafði á þeim tíma lýst sig reiðubúna til að leggja fram 13,5 millj. ísl. króna á ári gegn því að Ísland legði fram 8,5 millj. ísl. króna. Gert var ráð fyrir 3 millj. króna úr SAMIK-samstarfinu. Samtals 25 millj. króna.
Grænlenska heimastjórnin leggst nú gegn því að fé úr SAMIK-samstarfinu fari til annars en markaðssetningar á fluginu og leggur til að samningurinn við Flugfélag Íslands byggi á jöfnu framlagi frá hvoru landi, 12,5 millj. króna. Er því leitað eftir heimild ríkisstjórnarinnar vegna þessara fjögurra milljóna sem út af standa. Flugfélag Íslands hefur þegar selt nokkur hundruð miða á flugleiðinni þar sem samningar virtust í höfn á haustmánuðum.
Samgönguráðherra hefur óskað eftir heimild fjármálaráðherra til að nýta til þessa verkefnis eftirstöðvar af 15 millj. króna fjárheimild af fjárlögum ársins 2000. Þeir fjármunir voru upphaflega ætlaðir til uppbyggingar ferðamála í Scoresbysundi á Grænlandi en ekki verið nýttir fram að þessu. Í framhaldinu yrði síðan leitað eftir frekari fjárveitingum til að geta uppfyllt samninginn á árunum 2004 og 2005.
Brýnt er að flýta máli þessu þar sem Flugfélag Íslands þarf á allra næstu dögum að ganga frá leigu á flugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways til verkefnisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta