Mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingar á frestum sem gilda í aðdraganda kosninga
Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000. Með frumvarpinu er bætt inn í lögin ákvæði til bráðabirgða um breytingar á ýmsum frestum sem gilda í aðdraganda kosninga, með hliðsjón af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að kosið verði til Alþingis 25. apríl nk.
Lagt er til að við kosningarnar í vor gildi eftirfarandi frestir:
- viðmiðunardagur staðfestrar kjörskrár er styttur úr fimm vikum fyrir kjördag í fjórar vikur;
- kjörskrá skal leggja fram almenningi til sýnis átta dögum fyrir kjördag í stað tíu daga;
- landskjörstjórn skal birta auglýsingu um mörk kjördæmanna í Reykjavík eigi síðar en þremur vikum fyrir kjördag í stað fjögurra vikna.
- frestur til að tilkynna framboð er til kl. 12 á hádegi 11 dögum fyrir kjördag, í stað 15 daga;
- auglýsingar á framboðum skulu birtast eigi síðar en fimm dögum fyrir kjördag í stað tíu daga.
Þá er í frumvarpinu lagt til að gerðar verði nokkrar aðrar minni háttar breytingar á kosningalögunum. Þær fela ekki í sér efnislegar breytingar heldur miða að því að skýra ýmis atriði eða lagfæra. Einnig er uppfærður listi yfir sveitarfélög landsins í samræmi við breytingar vegna sameiningar sveitarfélaga eða breytinga á heitum þeirra.
Sjá frumvarpið hér.