Ísland í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis
Ísland ætlar að vera í farabroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Þá ætla íslensk stjórnvöld, innan ramma alþjóðlegra skuldbindinga og á grundvelli lýðheilsusjónarmiða, að koma í veg fyrir dreifingu matvæla sem í greinast sýklalyfjaónæmar bakteríur. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem ríkisstjórnin hélt við tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum í hádeginu í dag.
Ein helsta heilbrigðisógnin
Samkvæmt Alþjóðadýraheilbrigðismálastofnuninni, Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins og Matvælastofnun Evrópusambandsins er útbreiðsla sýklalyfjaónæmis ein helsta heilbrigðisógn sem steðjar að mönnum. Sýklalyfjaónæmi á Íslandi hefur þó verið umtalsvert minna vandamál en í nálægum löndum en mikilvægt þykir að stemma stigu við frekari útbreiðslu. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra undirrituðu yfirlýsingu 8. febrúar sl. um sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi. Með þeirri undirritun var jafnframt mörkuð opinber stefna stjórnvalda í málaflokknum.
Sýklalyfjaónæmissjóður settur á fót
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, greindi frá því að ríkisstjórnin hefði samþykkt aðgerðir í málaflokknum að tillögu Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra. Aðgerðirnar voru unnar af stýrihópi beggja ráðherra þar sem áttu sæti m.a. sóttvarnalæknir og yfirdýralæknir.
Á meðal helstu tillagna er að:
- Mynda teymi fimm sérfræðinga þvert á stofnanir sem helgar sig vörnum gegn sýklalyfjaónæmi.
- Setja á fót „Sýklalyfjaónæmissjóð“. Hlutverk sjóðsins verði m.a. að greiða fyrir skimun og vöktun á sýklalyfjaónæmi í dýrum, matvælum, umhverfi og fóðri.
- Uppfæra gagnagrunninn Heilsu sem heldur utan um skráningar dýralækna á notkun sýklalyfja í búfé (í dag aðeins nautgripir og hross).
- Skipa tvo starfshópa sérfræðinga sem annars vegar útbúa viðbragðsáætlanir er fylgja ber þegar sýklalyfjaónæmar bakteríur greinast í dýrum, sláturafurðum og matvælum og hins vegar útbúa leiðbeiningar um skynsamlega notkun og val á sýklalyfjum fyrir dýr, þ.m.t. sníkjudýralyf.
- Tryggja samvinnu ráðuneyta að stefnumótun vegna aðgerða til að minnka áhættu á dreifingu sýklalyfjaónæmra baktería með ferðamönnum auk fjárveitingar til verkefnisins.
Fjármögnun tryggð
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra munu verja 45 millj. kr. til að koma þessum verkefnum af stað strax á þessu ári. Jafnframt ætlar ríkisstjórnin að tryggja framtíðarfjármögnun þessa verkefnis.