Hoppa yfir valmynd
11. maí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 269/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 11. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 269/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23010025 og KNU23010026

 

Kæra [...], [...]

og barns þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 17. janúar 2023 kærðu [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir M) og [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir K), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 4. janúar 2023, um að synja þeim og barni þeirra [...], fd. [...], ríkisborgara Íraks, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Þess er aðallega krafist að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og kærendum og barni þeirra verði veitt staða flóttamanna hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kærendum ásamt barni þeirra verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Til þrautavara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og þeim ásamt barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kærendum og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá er þess að lokum krafist að kærendum og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 32. gr. d reglugerðar nr. 540/2017, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 122/2020.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 21. júlí 2021. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum 28. júlí 2021 kom í ljós að fingraför þeirra höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þá kom fram að K hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 1. nóvember 2018 og M 20. júní 2018. Við umsókn framvísaði K dvalarleyfisskírteini frá Grikklandi með gildistíma til 25. nóvember 2021 og grísku flóttamannavegabréfi með gildistíma til 10. júní 2026. Við umsókn framvísaði M dvalarleyfisskírteini frá Grikklandi með gildistíma til 25. september 2021 og grísku flóttamannavegabréfi með gildistíma til 4. mars 2023. Útlendingastofnun ákvað 9. september 2021 að taka ekki umsóknir kærenda til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Með úrskurði, dags. 2. desember 2021, staðfesti kærunefnd ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda. Hinn 13. desember 2021 lögðu kærendur fram beiðni um frestun réttaráhrifa en með úrskurði kærunefndar, dags. 13. janúar 2022, var kröfu kærenda hafnað. Hinn 16. júlí 2022 fæddist barn kærenda. Hinn 25. júlí 2022 lögðu kærendur fram beiðni um endurupptöku á þeim grundvelli að 12 mánuðir væru liðnir frá því þau lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi og tafir á meðferð málsins væru ekki á þeirra ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Með úrskurði, dags. 7. september 2022, var fallist á beiðni kærenda um endurupptöku, ákvarðanir Útlendingastofnunar voru felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kærenda til efnismeðferðar.

Kærendur komu í efnisviðtal hjá Útlendingastofnun m.a. 18. október 2022, ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 4. janúar 2023, synjaði Útlendingastofnun kærendum og barni þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 17. janúar 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 31. janúar 2023 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari upplýsingar frá kærendum 2. maí 2023.

III.    Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að M byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna þess að hann tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi sem súnní-múslimi og að hann sé eftirlýstur af hersveitum sjía-múslima þar sem hann hafi tekið þátt í mótmælum árið 2013. Þá óttist M að hann og K verði drepin af fjölskyldu K og fyrrum eiginmanni hennar snúi þau aftur til heimaríkis. Þá sé almennt ástand í heimaríki hans slæmt.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að K byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki vegna þess að hún hafi yfirgefið fyrrverandi eiginmann sinn og fjölskyldu vegna ofbeldis sem hún hafi mátt þola af hálfu eiginmannsins og bróður síns. Hún hafi haldið því fram að hún yrði drepin ef hún snéri til baka til Íraks og það sama ætti við um M. Þá hafi K byggt á því að hún tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi sem kona.

Niðurstaða ákvarðana Útlendingastofnunar var sú að kærendur væru ekki flóttamenn og þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kærenda, kom fram að það væri svo ungt að árum að ekki væri talið tilefni til að taka viðtal við það. Fram kom að umsókn barns kærenda væri grundvölluð á framburði foreldra þess og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum í málum foreldra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnsins og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra þess, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, útlendingalaga og barnaverndarlaga, að barni kærenda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis.

Kærendum og barni þeirra var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra myndi fresta réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kærenda

Kærendur vísa til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar hvað málsatvik varðar. Umsókn M um alþjóðlega vernd hér á landi hafi verið synjað aðallega með þeim rökum að honum hafi ekki tekist að sýna með trúverðugum og rökstuddum hætti að hann væri í sérstakri hættu umfram aðra borgara landsins þar sem heimildir beri ekki með sér að það eitt og sér að tilheyra þjóðarbroti súnní-múslima líkt og M leiði til þess að einstaklingar teljist hafa ástæðuríkan og rökstuddan ótta við ofsóknir í landinu. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli M komi fram að einstaklingur geti verið í slíkri aðstöðu að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna að hann geti átt á hættu ofsóknir einkum á grundvelli stjórnmálaskoðana eða vegna ætlaðra tengsla við Daesh eða Ba‘ath flokkinn. Líkt og fram komi í greinargerð kærenda til Útlendingastofnunar og efnisviðtali við M óttist hann einmitt ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sinna sem hann hafi opinberað með því að taka þátt í mótmælum árið 2013. Þegar stjórnmálaflokkurinn Al Hashd (PMF) hafi sigrað stríðið árið 2017 hafi þeir sakað M um að vera viðriðinn stjórnmálaflokkinn Ba‘th vegna þátttöku hans í mótmælunum sem hafi gert það að verkum að M hafi þurft að flýja.

Umsókn K um alþjóðlega vernd hér á landi hafi einnig verið synjað með þeim rökum að hún hafi ekki gert það sennilegt með trúverðugum og rökstuddum hætti að hún væri í sérstakri hættu í Írak umfram aðra borgara landsins. Í efnisviðtali hafi K greint frá því að hafa verið neydd í hjónaband og sætt líkamlegu og andlegu ofbeldi af hálfu fyrrum eiginmanns síns og bróður. Henni hafi tekist að flýja og í kjölfarið slitið öll samskipti við fjölskyldu sína. Útlendingastofnun hafi ekki talið það sennilegt að K verði fyrir ofbeldi í Írak af hálfu fjölskyldu og fyrrum eiginmanns þar sem hún hafi ekki fengið hótanir frá þeim síðan hún hafi flúið land. Þá gæti hún notið verndar eiginmanns síns og fjölskyldu hans snúi þau aftur til Mósúl.

Kærendur komi bæði frá Mósúl í Írak en hafi kynnst í Grikklandi þar sem þau hafi gengið í hjónaband. Kærendur hafi eignast barn hér á landi [...]. Kærendur vísa til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar varðandi umfjöllun um stöðu mannréttindamála í Írak og almennt öryggisástand í Mósúl. Heimildir beri með sér að írökskum stjórnvöldum hafi ekki tekist að koma í veg fyrir árásir á súnní-múslima af hendi PMF hersveita sem séu hliðhollar Íran. Kærendur vísa til ýmissa alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings. Skýrslur um stöðuna í Írak staðfesti einnig að síðastliðið ár hafi írakskar hersveitir handtekið að geðþótta karlmenn sem tilheyri trúarhópi súnní-múslima, aðallega frá þeim svæðum þar sem hryðjuverkahópurinn ISIS hafi verið virkur, undir því yfirskyni að hersveitirnar væru að berjast gegn hryðjuverkum. Heimildir hermi að mennirnir hafi sætt illri meðferð og reglur um réttláta málsmeðferð hafi verið virtar að vettugi. Að sögn vitna og fjölskyldumeðlima hafi öryggissveitirnar handtekið menn reglulega án dómsúrskurða, handtökuskipana eða annarra skjala og hafi oft ekki gefið neina ástæðu fyrir handtökunum. Þá hafi sumir verið í haldi í marga mánuði og jafnvel horfið í kjölfarið.

Kærendur gera ýmsar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar. Útlendingastofnun staðhæfi með órökstuddum hætti að frásögn M hafi verið ruglingsleg á köflum. Jafnframt sé þess getið að M hafi borið fyrir sig minnisleysi um málsatvik og frásögn hans um tímasetningar hafi verið ónákvæm. Það að M hafi ekki getað staðfest hvort eitthvað hafi gerst í ágúst eða september á tilteknu ári sé ekki til þess fallið að unnt sé að staðhæfa að tímasetningar í frásögn hans hafi verið ónákvæmar. Frásögn M hafi að öðru leyti verið mjög nákvæm og ítarleg. M hafi lýst ítarlega flóknu pólitísku ástandi og hvernig það hafi samtvinnast lífi hans á stríðsárunum í Mósúl. Frásögn M fari fullkomlega saman við heimildir um ástandið í Mósúl á meðan átökum hafi staðið á milli Írak, Íran, Kúveit, ISIS og Al-Hashd og vegna hernáms Bandaríkjanna og átakanna á milli sjía og súnní-múslima.

Í öðru lagi sé rökstuðningur fyrir því að það beri að synja M um alþjóðlega vernd samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ekki í samræmi við niðurstöður trúverðugleikamats sömu ákvörðunar. Í ákvörðuninni komi fram að með vísan í trúverðugleikamat og fyrirliggjandi gögn sé það mat Útlendingastofnunar að M hafi ekki með trúverðugum og rökstuddum hætti gert það sennilegt að hann sé í sérstakri hætti í Írak umfram aðra borgara landsins. Fram komi bæði í trúverðugleikamatinu sem og í umfjöllun um alþjóðlega vernd samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga að það dugi ekki að vera súnní-múslimi til að einstaklingur teljist hafa ástæðuríkan ótta um ofsóknir heldur þurfi einstaklingsbundnar aðstæður að vera fyrir hendi, svo sem á grundvelli stjórnmálaskoðana eða vegna ætlaðra tengsla og/eða tengsla við ISIS eða Ba‘th-flokkinn. M hafi einmitt byggt á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við PMF á grundvelli stjórnmálaskoðana, á grundvelli þjóðfélagshóps sem mótmælandi og vegna þess að hann tilheyri þjóðarbrotinu súnní-múslimi sem hafi verið ranglega bendlaður við ISIS eða Ba‘th-flokkinn vegna mótmæla. Í trúverðugleikamatinu komi fram að Útlendingastofnun geti ekki útilokað frásögn kærenda. Þá komi ekkert fram í frásögn M sem sé í verulegu ósamræmi við þær upplýsingar sem Útlendingastofnun hafi kynnt sér við rannsókn málsins. Af þeim sökum sé ekki hægt að útiloka að menn á vegum PMF hafi lýst eftir M þó frásögn hans sé á köflum ruglingsleg um málsatvik.

M telji sig því uppfylla bæði hinn hlutlæga og huglæga þátt orðasambandsins ,,að hafa ástæðuríkan ótta við að vera ofsóttur“. Niðurstaða Útlendingastofnunar byggi á því að M sé ekki flóttamaður, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þar sem hann hafi engin persónuleg gögn lagt fram sem sannreyni frásögn hans og vegna þess að frásögn hans hafi verið ruglingsleg. Vísar M í því samhengi til undantekningar frá meginreglu um sönnunarbyrði sem gildi um þá sem sæki um alþjóðlega vernd samkvæmt handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna. Þar komi fram að láta beri umsækjanda njóta vafans ef frásögn hans virðist trúverðug nema góðar og gildar ástæður mæli á móti því. M byggir á því að þar sem Útlendingastofnun hafi metið frásögn hans trúverðuga með tilliti til hlutlægra gagna og að þau hafi viðurkennt að ekki sé hægt að útiloka að hann hafi sannarlega verið eftirlýstur af PMF hersveitum og gengið í gegnum erfiða reynslu á stríðstímum þá beri að láta hann njóta vafans og veita honum vernd samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

K byggir á því að forsendur hinnar kærðu ákvörðunar, um að fjölskylda hennar og fyrrverandi eiginmaður hafi ekki hótað henni síðan hún hafi flúið land jafngildi því að henni stafi ekki ógn af þeim, séu rangar. Það stríði gegn lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins að gera óbeint kröfu um að K þurfi að hafa fengið hótanir frá fólki sem hún hafi gagngert flúið undan.

Til stuðnings aðalkröfu sinni byggja kærendur á því að heimildir kveði á um að írökskum stjórnvöldum hafi ekki tekist að koma í veg fyrir árásir á súnní-múslima í landinu m.a. í heimahéraði kærenda. Þá áréttar M að í heimahéraði kærenda, Ninewa sé að finna flesta meðlimi Al-Hashd hersveitarinnar í Írak en um það bil 30.000 PMF herliðar séu staðsettir þar. Útlendingastofnun hafi ekki tekið afstöðu til þess í hinni kærðu ákvörðun. Jafnframt liggi fyrir að ISIS sé með aðsetur um þessar mundir í eyðimörkum Mósúl og hafi á þessu ári framkvæmt árásir á innviði bæjarins. Þá sé sú forsenda Útlendingastofnunar að K geti sótt vernd til M og fjölskyldu hans í Mósúl ekki raunhæf í ljósi þess að M sé eftirlýstur af PMF hersveitum. Jafnframt búi fjölskyldurnar í sama bæ sem auki líkurnar á því að fjölskylda K drepi hana og M snúi þau aftur til bæjarins.

Til stuðnings varakröfu sinni vísa kærendur til heimilda í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar og árétta enn og aftur að viðvera PMF hersveita af sjía þjóðarbrotinu hafi aukist á ný í Mósúl. Kærendur ítreka að einstaklingar sem hafi verið eftirlýstir af PMF eins og M séu í sérstaklega mikilli hættu fari þeir á svæði sem þessi.

Hvað varðar þrautavarakröfu kærenda vísa þau til þess að Útlendingastofnun hafi greint frá því í ákvörðun sinni að ekki væri hægt að útiloka að M hafi upplifað atburði meðan að stríð hafi geisað sem hafi haft áhrif á líðan hans og heilsu. Þá hafi stofnunin ekki getað útilokað að K hafi upplifað atburði þá sem hún hafi lýst og kunni að eiga á hættu að sæta ofbeldi eða vera í lífshættu snúi hún aftur til Írak. Ofbeldið, nauðungarhjónabandið, frelsissviptingin, barsmíðarnar og andlega ofbeldið sem að K hafi lýst í efnisviðtali sínu sé hrottalegt. Félagslegar aðstæður kærenda í Mósúl séu bágbornar og þau njóti ekki stuðnings fjölskyldu K. Sjúkragögn K sýni fram á að hún hafi alvarleg kvíðaeinkenni og miðlungs alvarleg einkenni þunglyndis.

Til stuðnings þrautaþrautavarakröfu sinni vísa kærendur til þess að þau hafi lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 21. júlí 2021. Það séu því liðnir meira en 18 mánuðir síðan kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd. Þau hafi lagt fram afrit af írökskum skilríkjum sínum og hafi M lagt fram afrit af írökskum vegabréfum foreldra sinna. Þá liggi jafnframt fyrir að önnur skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt í máli þeirra og ekki leiki vafi á því hver kærendur séu, sbr. b-liður. Kærendur hafi eignast barn hér á landi og megi hið minnsta telja að ekki leiki vafi á því hvert barn þeirra sé. 

Til stuðnings þrautaþrautaþrautavarakröfu sinni vísa kærendur til þess að barn þeirra hafi náð 16 mánaða tímamarkinu, sbr. 32. gr. d reglugerðar um útlendinga, 21. nóvember 2022, en kærendur hafi lagt fram umsóknir sínar 21. júlí 2021. Þá telji þau eðlilegt að veita einnig foreldrum sem fari með forsjá barns dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga, til að tryggja einingu fjölskyldunnar í samræmi við meginregluna þar um, sbr. úrskurður kærunefndar nr. 54/2021 frá 11. febrúar 2021.

Að lokum byggja kærendur á því að endursending þeirra til heimaríkis myndi jafngilda því að þau yrðu send til svæðis þar sem þau hefðu ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, og verði í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð og bryti því gegn 1. mgr. 42. gr. laganna. Að auki myndi það brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað grískum ferðaskilríkjum og dvalarleyfisskírteinum. Þá hafi þau framvísað afritum af írökskum kennivottorðum. Þá lagði M fram afrit af dómsskjali um skilnað hans við fyrrum eiginkonu sína.

Var það mat Útlendingastofnunar að kærendur hefðu ekki sannað hver þau væru með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni þeirra á grundvelli mats á trúverðugleika. Komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærendur væru frá Mósúl í Írak og væru súnní-múslimar. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hafa kærendur lagt fram afrit af vegabréfum foreldra M. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur séu írakskir ríkisborgarar.

Réttarstaða barns kærenda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Iraq (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Report on International Religious Freedom: Iraq (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
  • 5 years since Mosul retaking, young people face education, employment crisis (Norwegian Refugee Council, 6. júlí 2022);
  • Country Guidance: Iraq (European Union Agency for Asylum (EUAA), 29. júní 2022);
  • Country Guidance: Iraq; Common analysis and guidance note (European Asylum Support Office, janúar 2021);
  • Country Guidance: Iraq; Common analysis and guidance note (European Asylum Support Office, 29. júní 2022);
  • Country of Origin Information Report – Iraq – Actors of Protection (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • Country of Origin Information Report – Iraq: Internal Mobility (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • Country of Origin Information Report – Iraq – Security situation (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Actors of protection (UK Home Office, desember 2020);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Humanitarian situation (UK Home Office, ágúst 2022);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Internal relocation, civil documentation and returns (UK Home Office, maí 2020);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Medical and healthcare provision (UK Home Office, janúar 2021);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Religious minorities (UK Home Office, júlí 2021);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Security situation (UK Home Office, nóvember 2022);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Sunni Arabs (UK Home Office, janúar 2021);
  • DFAT Country Information Report Iraq (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 16. janúar 2023);
  • Freedom in the World 2022 – Iraq (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing the Republic of Iraq (UNHCR, maí 2019);
  • Iraq: Relevant COI for Assessments on the Availability of the Internal Flight or Relocation Alternative (IFA/IRA)(UNHCR, 12. apríl 2017);
  • Iraq – Targeting of Individuals (European Union Agency for Asylum, janúar 2022);
  • Relevant Country of Origin Information to Assist with the Application of UNHCR’s Country Guidance on Iraq - Ability of Iraqis to Legally Access and Settle Durably in Proposed Areas of Internal Relocation (UNHCR, nóvember 2022);
  • Sixteenth report of the Security-General on the threat posed by ISIL (Da’esh) to international peace and security and the range of United Nations efforts in support of Member States in countering the threat (UN Security Council, 1. febrúar 2023);
  • The World Factbook – Iraq (Central Intelligence Agency, uppfært 13. mars 2023);
  • UNHCR Fact Sheet – Iraq (UNHCR, 13. febrúar 2022);
  • Upplýsingasíða United States Institute of Peace (Iraq Timeline: Since the 2003 War United States Institute of Peace (usip.org), sótt 30. mars 2023) og
  • World Report 2023 – Iraq (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Írak er lýðræðisríki með tæplega 40 milljónir íbúa. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðsamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.

Samkvæmt upplýsingasíðu leyniþjónustu Bandaríkjanna eru flestir Írakar arabar, n.t.t. 75-80%, og Kúrdar eru u.þ.b. 15-20%. Önnur þjóðarbrot séu til að mynda Túrkmenar, Yezidi, Shabak, Kaka´I og Bedouin. Í skýrslu EASO frá janúar 2021 kemur fram að Túrkmenar séu þriðja stærsta þjóðarbrotið í Írak. Séu Túrkmenar bæði súnní- og síja-múslimar.

Á vefsíðu Friðarstofnunar Bandaríkjanna (e. United States Institute of Peace) kemur fram að eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli árið 2003, hafi nýir leiðtogar Íraks átt í erfiðleikum með að marka lýðræðislega stefnu eftir áratuga einræði og hafi einkum tvær aðgerðir átt veigamikinn þátt í því. Í fyrsta lagi hafi ákvörðun Bandaríkjanna um að útiloka Baath-flokkinn, sem hafi lengi verið við völd og hvernig það hafi verið útfært, frá stjórn ríkisins skapað pólitískt tómarúm. Í öðru lagi hafi sú aðgerð að leysa upp her landsins og útiloka hundruð þúsunda þjálfaðra manna frá störfum við varnir ríkisins, án þess að koma á fót öðrum valkostum, skilið eftir öryggistóm. Í kjölfarið hafi Írak mátt þola borgarastyrjöld, pólitíska ringulreið, víðtæka spillingu, spennu á milli flokka og öfgahópa sem hafi hertekið þriðjung landsins. Við þessa atburði hafi hið pólitíska valdajafnvægi sem ríkt hafði undir stjórn súnníta um aldir riðlast verulega. Sjítar hafi krafist forsætisráðuneytisins og haft nægilegt vald til að stjórna helstu ráðuneytum. Þá hafi í fyrsta skipti verið kúrdískur forseti í Írak og urðu Kúrdar, sem lengi höfðu krafist sjálfsstjórnar frá Bagdad, hluti af ríkinu. Stjórnarskráin viðurkenni sjálfstjórn Kúrdistan héraðs (KRG) og formlega stöðu Pehmerga herafla hennar. Súnnítar, sem höfðu drottnað yfir ríkinu undir stjórn Saddams, hafi haldið lykilstöðu forseta þingsins en misst aðrar valdastöður. Árið 2011 ákváðu Bandaríkin að hverfa frá Írak með samkomulagi við stjórnvöld í Bagdad um að þau myndu innlima súnníta í íröksku öryggissveitirnar til að halda aftur af starfsemi sértrúarsafnaða. Íröksk stjórnvöld hafi hins vegar ekki fylgt því eftir að ráða minnihlutahópi súnníta í sína þjónustu og það hafi leitt til þess að öfgasamtökin Islamic State in Iraq (ISI) hafi endurskipulagt sig og fengið til liðs við sig þúsundir súnníta innan og utan Íraks, þar á meðal fyrrverandi stjórnarhermenn. Árið 2013 hafi hernaður samtakanna færst yfir til Sýrlands og endurnefndu þau sig sem Islamic State in Iraq and Syria (ISIS). Samtökin séu einnig þekkt sem ISIL (Islamic State in Iraq and the Levant (ISIL)) og Daesh (hér eftir verður notað Daesh). Fram kemur að hersveitir Daesh hafi hertekið Al Fallujah borg í Al Anbar héraði í desember 2013 og hafi írakski herinn, þrátt fyrir mun fleiri meðlimi, fallið í kjölfarið. Í júní 2014 hafi Daesh náð þriðjungi landsins á sitt vald og hafi leiðtogi Daesh, Abu Bakr al-Baghdadi, lýst yfir stofnun íslamsks ríkis í Mósúl, næststærstu borg Íraks, og nefnt sig kalífa. Á árunum 2015 til 2017 hafi írakskar öryggissveitir, kúrdískar Peshmerga-sveitir og PMF sveitir, studdar af flugherjum frá bandalagi undir forystu Bandaríkjanna, smám saman náð landsvæðum frá Daesh. Í desember 2017 lýsti Haider al-Abadi forsætisráðherra yfir sigri gegn Daesh.

Í skýrslu EUAA frá 2022 kemur fram að Daesh hafi ekki náð yfirráðum yfir frekara landsvæði síðan en reyni að festa sig í sessi á óaðgengilegum svæðum svo sem í dölum, fjöllum, eyðimörkum og á norður- og miðsvæði landsins. Þá hafi einhver starfsemi hópsins verið skráð í Al Anbar, Ninewa, Erbil, Bagdad beltinu, Diyala, Kirkuk og Salah al-Din. Baráttan um frelsun Mósúl frá Daesh sem hafi hafist í október 2016 hafi staðið yfir í níu mánuði og valdið gríðarlegri eyðileggingu borgarinnar. Frá því lýst var yfir sigri gegn Daesh í desember 2017 hafi samtökin háð skæruhernað með minna móti. Árásum hafi fækkað á seinni hluta árs 2020 en aukist á ný árið 2021, en fjöldi þeirra hafi þó haldist tiltölulega lágur. Flestar árásir í Ninewa héraði hafi verið ætlaðar til þess að halda óbreyttum borgurum og öryggissveitum frá því svæði sem helsta starfsemi samtakanna fari fram. Flestar árásir samtakanna í Ninewa árið 2021 hafi verið á raforkukerfið í héraðinu. Daesh noti svæði í Ninewa sem séu með litla viðveru öryggissveita sem eins konar flutningsmiðstöð og treysti á afskekktar bækistöðvar á eyðimerkursvæðum til að hýsa bardagamenn og koma á fót stjórnstöðvum. Hópur meðlima Daesh dvelji leynilega meðal þeirra sem séu skotmörk samtakanna og bíði eftir tækifæri eða fyrirmælum um að fremja árás. Meirihluti árása Daesh í Ninewa hafi átt sér stað innan umdæmis Mósúl. Samkvæmt gögnum ACLED hefur mannfall óbreyttra borgara árin 2021 og 2022 verið mjög lítill hluti af heildarfjölda íbúa og verulega lægri en á þeim tíma sem átök áttu sér stað milli stjórnarhers Íraks og Daesh á árunum 2014 til 2017.

Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 má ráða að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Í upplýsingaskýrslu EEAS frá árinu 2014 kemur fram að á tímabilinu 2005 til 2013 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins, svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin nefnist The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 7000 opinberir starfsmenn undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd í landinu.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins vegna áranna 2021 og 2022 og skýrslu Mannréttindavaktarinnar (e. Human Rights Watch) fyrir sama tímabil kemur fram að þrátt fyrir að stjórnarskrá Íraks banni allt ofbeldi og misnotkun innan fjölskyldunnar þá tilgreini refsilög landsins heimilisofbeldi ekki sérstaklega og lögin heimili eiginmönnum að aga eiginkonur sínar og börn innan ákveðinna marka sem séu nánar tilgreind í lögum og venjum. Innanríkisráðuneyti Íraks haldi úti 16 fjölskylduverndareiningum innan lögreglunnar, sem að staðsettar séu í sérhúsnæði við lögreglustöðvar víðsvegar um landið. Þessum einingum sé ætlað að leysa úr deilum innan heimilisins og vera öruggur staður fyrir þolendur kynferðis- og kynbundins ofbeldis. Einingarnar hafi þó verið gagnrýndar fyrir að leggja áherslu á að slík mál séu leyst með sátt innan fjölskyldunnar. Þá hafi frjáls félagasamtök fullyrt að þolendur veigri sér við að leita aðstoðar innan þessara eininga af ótta við að lögreglan greini fjölskyldum þeirra frá. Enn fremur hafi sumir ættbálkar bannað sínum meðlimum að leita til þessara eininga eftir aðstoð þar sem að heimilisofbeldi sé einkamál fjölskyldunnar. Í skýrslu EUAA um Írak frá árinu 2022 kemur fram að fá neyðarskýli séu í landinu sem konur geti leitað til neyðist þær til að yfirgefa heimili sitt vegna ofbeldis. Stjórnvöld hafi m.a. gripið til þess úrræðis að hýsa konur í fangelsum vegna skorts á skýlum. Flest neyðarskýli sé að finna í stærri borgum og séu rekin af sjálfboðaliðum. Konur sem dvelji þar geti verið í viðkvæmri stöðu þar sem þær hafi ekki stuðning karlkyns ættingja. Þá lendi konur í erfiðleikum við að leita réttar síns vegna neikvæðra viðhorfa lögreglu- og opinberra starfsmanna gagnvart konum og skorti á þekkingu um réttindi kvenna.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 um trúfrelsi kemur fram að Íslam sé hin opinbera trú í Írak. Um 97% íbúa Íraks séu múslimar og flestir þeirra séu síja-múslimar eða um 55-60% íbúa landsins. Þá séu um 40% íbúa landsins súnní-múslimar en um 15% íbúa séu súnní-múslimskir Kúrdar og 24% súnní-múslimskir arabar. Síja-múslimar séu ráðandi í suður- og austurhlutum landsins auk þess sem flestir íbúar höfuðborgarinnar Bagdad séu síja-múslimar. Íbúar norður-og vesturhluta landsins séu flestir súnní-múslimar sem og íbúar miðsvæðisins, þó að undanskilinni Bagdad. Íslam, kristni, Sabaean-mandaen og jasídi séu einu trúarbrögðin sem geti verið tilgreind á írökskum skilríkjum, en skilríki útgefin árið 2016 og síðar beri ekki með sér hverrar trúar handhafi sé. Í skýrslu Landinfo frá 2018 kemur fram að í íröksku samfélagi séu einstaklingar skilgreindir út frá þeim trúarhópum sem þeir fæðist inn í og að litið sé með vanþóknun á trúleysi. Þá kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 að það hafi verið einstök tilvik í Írak þar sem meðlimir trúarlegra minnihlutahópa hafi verið beittir ofbeldi eða drepnir en þau tilvik megi ekki alltaf rekja til trúarbragða viðkomandi. Einstaklingar sem skipti úr íslam yfir í aðra trú kunni að mæta erfiðleikum innan fjölskyldu sinnar og samfélags, s.s. að verða útskúfaðir, hótað lífláti eða jafnvel drepnir. Mögulegar afleiðingar af trúskiptum séu breytilegar milli ættbálka og einstakra fjölskyldna.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um súnní-múslima kemur fram að dæmi séu um að írakski stjórnarherinn hafi misþyrmt súnní-múslimum, m.a. með beitingu gerræðislegra handtaka, varðhalds og þvingaðra mannshvarfa, pyndinga og annarrar vanvirðandi meðferðar vegna meintra tengsla þeirra eða stuðnings við Daesh. Þá séu dæmi um að sveitir PMU (e. Popular Mobilization Forces) hafi tekið þátt í mannránum, fjárkúgunum, morðum, pyndingum súnní-múslima og eyðileggingu eigna þeirra á grundvelli ásakana um tengsl þeirra við Daesh, einkum á þeim svæðum sem áður hafi verið undir stjórn samtakanna. Samkvæmt framangreindri skýrslu breska innanríkisráðuneytisins er þó meðferð írakskra yfirvalda á súnní-múslimum almennt ekki nægilega alvarleg í eðli sínu og endurtekningu til að hún geti talist ná þeim þröskuldi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð nema einstaklingur geti sýnt fram á að atvik sem tengist honum persónulega setji hann í aukna hættu, t.a.m. ætluð tengsl við Daesh.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslu EUAA frá 2022, er fjallað um erfiða stöðu kvenna í Írak. Fram kemur að efnahagsþvinganir og langvarandi átök hafi leitt til þess að lífsgæði þeirra hafi farið versnandi. Karllæg gildi séu ríkjandi í Írak og skortur sé á umræðu um réttindi kvenna og getu þeirra til að taka frekar þátt í samfélaginu. Konur séu jaðarsettar á mörgum sviðum samfélagsins og hafi mætt margvíslegum hindrunum, þ. á m. hvað varðar aðgengi að vinnumarkaði og heilbrigðiskerfi. Þá hafi margvísleg mannréttindabrot beinst að konum, þ. á m. kynferðis- og heimilisofbeldi, kynfæralimlestingar, heiðursmorð og þvinguð hjónabönd. Konur hafi veigrað sér við að leita aðstoðar lögregluyfirvalda vegna þessa, m.a. vegna viðmóts yfirvalda í garð kvenna, og séu málin því oft leyst innan viðkomandi fjölskyldu eða ættbálks. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og skýrslu EUAA frá 2022 virða íröksk lög og venjur almennt ekki ferðafrelsi kvenna og koma lög t.a.m. í veg fyrir að þær geti sótt um vegabréf án samþykkis karlkyns forráðamanns eða lögmanns. Þá geti konur ekki fengið útgefin persónuskilríki, sem krafist sé fyrir aðgang að opinberri þjónustu, mataraðstoð, heilsugæslu, atvinnu, menntun og húsnæði, án samþykkis karlkyns ættingja. Konur í Írak séu berskjaldaðar fyrir ýmis konar misnotkun af hálfu vinnuveitenda. Einstæðar og fráskildar konur, ekkjur og konur á vergangi séu sérstaklega viðkvæmar fyrir félagslegum fordómum, efnahagslegri misnotkun, mismunun í tengslum við vinnuskilyrði og varnarlausar gagnvart nauðungarvinnu. Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2022 hafi ótryggt félagshagfræðilegt ástand í Írak óhófleg áhrif á konur, ásamt fólki sem búi við fötlun, sem eigi oft erfiðara með að fá vinnu og lifa sjálfstætt sökum stofnana- og menningarlegra hindrana. Yfirvöld í Írak hafi gerst aðili að alþjóðlegum samningum um réttindi kvenna, s.s. samningi Sameinuðu þjóðanna frá 1986 um afnám allrar mismunar gagnvart konum (e. UN‘s Convention on the Elimination of All Forms of Discrimination Against Women, CEDAW), en hafi gert fyrirvara við nokkur af helstu ákvæðum samningsins. Þá hafi yfirvöld komið á fót aðgerðaráætlun um stöðu kvenna í Írak (e. National Action Plan concerning women for 2014-2018, NAP), sem byggð er á ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2014. Fyrrnefnd aðgerðaráætlun hafi átt að ná fram því markmiði að auka þátttöku kvenna í stjórnmálum og bæta réttindi þeirra en skort hafi á útfærslu og framkvæmd áætlunarinnar.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2021 kemur fram að um 150 ættbálkar séu í Írak. Allt að 80% íbúa í Írak séu meðlimir ættbálka eða hafi tengsl við ættbálk. Ættbálkar í Írak séu gjarnan þungvopnaðir og hafi tekið þátt í innanlandsátökum. Einstaklingar sem fari ekki að vilja ættbálka sinna geti átt það á hættu að vera vísað á brott úr ættbálknum, vera útskúfað eða jafnvel drepin. Þá geti einstaklingar sem fari ekki að menningarlegum, samfélags- eða trúarlegum venjum ættbálks átt refsiaðgerðir á hættu, s.s. fjárhagsþvinganir. Í sömu skýrslu kemur fram að einstaklingar sem fylgi ekki hefðum og venjum samfélagsins í Írak og hegði sér á “vestrænan” hátt kunni að verða fyrir ofbeldi og hótunum, þá einkum konur. Síja hersveitir hafi framfylgt ströngum reglum um klæðaburð, þ. á m. í Bagdad og Basra, og hafi ráðist á konur sem þeir telji að séu klæddar á óviðeigandi hátt eða séu án andlitsslæðu (a. hijab).

Í fyrrnefndri skýrslu EUAA frá 2022 er fjallað um þvinguð hjónabönd ungra stúlkna í Írak. Lögum samkvæmt sé lágmarksaldur hjónaefna í Írak 18 ára en lögin heimili dómara að gifta stúlkur niður í 15 ára aldur. Yfirvöld í Írak hafi reynt að framfylgja lögunum en hafi ekki tekist að koma í veg fyrir aukningu á þvinguðum hjónaböndum ungra stúlkna. Slík hjónabönd séu samfélagslega viðurkennd í Írak og sé áætlað að allt að 10% kvenna í Írak sem giftist séu 15 ára eða yngri. Fram kemur að eina leið kvenna til þess að losna úr þvinguðu hjónabandi sé að fá samþykkta beiðni um skilnað. Það geti hins vegar haft í för með sér hefndaraðgerðir af hálfu fjölskyldu þeirra og tengdafjölskyldu. Þá sé konum í slíkri stöðu sem leggi fram kvörtun eða ákæru til lögreglu ekki tryggð vernd samkvæmt írökskum lögum. Í ljósi framangreinds sé skilnaðarúrræði ekki úrræði sem margar írakskar konur kjósi.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2021 kemur fram að heiðursmorð sé yfirleitt morð á kvenkyns ættingja sem framið sé í því skyni að endurheimta heiður fjölskyldunnar þar sem þolandinn hafi á einhvern hátt vanvirt fjölskylduna, s.s. með því að neita að ganga í hjúskap með manni sem fjölskyldan hefur valið, gangi í hjúskap gegn vilja fjölskyldunnar eða óska eftir skilnaði. Heiðursglæpir geti verið framdir af eiginmanni, föður, bróður eða öðrum ættingja. Heiðursmorð séu oft tilkynnt sem slys eða sjálfsvíg en allt bendi til þess að nokkur hundruð stúlkna og kvenna séu þolendur heiðursmorðs víðsvegar um Írak á ári hverju. Dæmi séu um að gerendur í slíkum málum séu sóttir til saka en sjaldan sé sakfellt í slíkum málum. Yfirvöld í Írak séu því ekki fær um að veita þeim sem séu í hættu á heiðursofbeldi skilvirka vernd.

Þá kemur fram í skýrslu dönsku útlendingastofnunarinnar frá nóvember 2018 að karlmenn sem eigi í samböndum utan hjúskapar séu ekki taldir smána heiður fjölskyldunnar og að karlmenn í slíkum aðstæðum eigi að venju til auðvelt með að komast hjá deilum. Hins vegar séu karlmenn undir þrýstingi um að giftast og dæmi séu um að menn hafi verið drepnir neiti þeir því. Þá segir að þegar karlmaður sé myrtur í heiðursdeilu eigi það frekar rætur að rekja til hefndar eða blóðhefndar en heiðurs fjölskyldunnar. Í slíkum málum séu báðar fjölskyldurnar vanalega samþykkar morðinu. 

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2021 um heilbrigðiskerfið í Írak kemur fram að stjórnarskrá landsins tryggi ríkisborgurum aðgang að heilbrigðiskerfi landsins. Heilbrigðiskerfið í Írak hafi hafi sætt gagnrýni, m.a. fyrir skort á starfsfólki, lyfjum og almennu aðgengi. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu takmarkaður og mismunandi eftir landsvæðum. Meirihluti heilsugæslustöðva og almennra sjúkrahúsa séu staðsettur í þéttbýli og geti ríkisborgarar þar sótt sér heilbrigðisþjónustu, m.a. geðheilbrigðisþjónustu, gegn vægu gjaldi. Flestar heilbrigðisstofnanir séu í Bagdad og þar á eftir komi héröðin Ninewa, Najaf og Basra. Þá sé einkarekin heilbrigðisþjónusta í vexti í landinu auk þess sem ýmis frjáls félagasamtök vinni með stjórnvöldum að því að tryggja aðgengi fyrir fólk á innri flótta sem og fólk sem snýr til baka til Íraks eftir að hafa flúið heimaríki sitt.

Í skýrslu Alþjóða fólksflutningsstofnunarinnar (IOM) frá árinu 2019 kemur fram að yfirvöld tryggi að öll börn eigi rétt á endurgjaldslausri menntun frá sex ára aldri. Fjölskyldur sem snúi aftur til Íraks eftir að hafa sótt um alþjóðlega vernd í öðrum löndum geti sótt um aðstoð hjá stofnuninni við enduraðlögun. Í skýrslu EASO frá árinu 2020 kemur fram að það séu ýmsar hindranir að aðgengi að menntun fyrir börn á innri flótta og börn sem séu búsett á svæðum sem hafi verið undir stjórn Daesh.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

M byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna þess að hann sé eftirlýstur af hersveitum sjía múslima vegna þátttöku hans í friðsamlegum mótmælum árið 2013. M óttist að verða fyrir ofbeldi eða verða drepinn snúi hann aftur til heimaríkis einkum vegna meintra tengsla hans við Baath flokkinn.

K byggir umsókn sína á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna þess að hún hafi yfirgefið fyrrverandi eiginmann sinn og fjölskyldu vegna ofbeldis sem hún hafi mátt þola af hálfu eiginmannsins og bróður síns. Þá byggir hún á því að tilheyra sérstökum þjóðfélagshópi sem kona og hún sé utan heimaríkis vegna hættu sem stafi af því að hún hafi kastað rýrð á heiður fjölskyldu sinnar með því að flýja hjónabandið. K og M séu því í hættu að verða fyrir heiðurstengdu ofbeldi af hálfu fjölskyldu K og fyrrverandi eiginmanns hennar.

Kærendur byggja jafnframt á því að þau tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi sem súnní-múslimar sem sé minnihlutahópur í heimaríki þeirra sem sæti ofsóknum af hálfu PMF hersveita. Til viðbótar byggja þau á almennu ástandi í heimaríki sínu.

Mat á trúverðugleika frásagna kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kærenda.

M greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera fæddur og uppalinn í Mósúl í Írak og vera súnní-múslimi. Hann tilheyri Al Taii ættbálki í heimaríki og sé ekki aðili að stjórnmálaflokki eða virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Hann hafi árið 2013 tekið þátt í friðsamlegum mótmælum í heimaríki til að krefjast almennra mannréttinda. Á árunum 2014 til 2017 hafi stríð geisað í Mósúl milli vígamanna Daesh og Al Hashd (PMU). Þegar Al Hashd hafi náð yfirráðum í Mósúl af Daesh árið 2017 hafi þeir handtekið þá sem tekið höfðu þátt í mótmælum. Fjórir bræður hans hafi verið drepnir í stríðinu og þrír handteknir. Flokksmenn Al Hashd hafi leitað M en honum hafi tekist að flýja til þáverandi tengdafjölskyldu sinnar og 10. september 2017 til Kúrdistan og þaðan til Tyrklands. M sé eftirlýstur af Al Hashd sem hafi komið til fjölskyldu hans að spyrja um hann þangað til foreldrar hans hafi verið neydd til að skrifa undir gögn um að hann væri ekki sonur þeirra lengur.

Í framangreindum landaupplýsingum kemur fram að sveitir PMU hafi tekið þátt í mannránum, fjárkúgunum, morðum og pyndingum súnní-múslima og eyðileggingu eigna þeirra á grundvelli ásakana um tengsl þeirra við Daesh, einkum á þeim svæðum sem áður hafi verið undir stjórn samtakanna. Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins er framangreind meðferð á súnní-múslimum þó almennt ekki nægilega alvarleg í eðli sínu og endurtekningu að hún geti talist ná þeim þröskuldi að teljast ofsóknir eða ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð nema einstaklingur geti sýnt fram á að atvik sem tengist honum persónulega setji hann í aukna hættu, t.a.m. ætluð tengsl við Daesh. Líkt og að framan greinir telur M sig í hættu í heimaríki vegna þátttöku í mótmælum árið 2013. Al Hashd hafi haldið því fram að vegna mótmælanna hafi myndast aðstæður sem opnað hafi fyrir glæpahóp Daesh til að ráðast inn á svæðið. M sé því eftirlýstur í Mósúl vegna hugsanlegra tengsla við Daesh. Í viðtali hjá Útlendingastofnun var M spurður að því hvort hann teldi sig vera sérstakt skotmark í þeim aðstæðum sem uppi eru á heimasvæði hans í dag. M taldi sig vera skotmark en taldi alla aðra í Írak einnig í hættu. Þá var M spurður að því hvort til væru gögn sem sýndu fram á að hann væri eftirlýstur en hann greindi frá því að hann hefði ekkert til að staðfesta það eða sanna. Þá gat M ekki lagt fram gögn sem sýndu fram á að foreldrar hans hafi skrifað undir skjal þess efnis að hann væri ekki lengur sonur þeirra. Af gögnum er ljóst að fjöldi súnní-múslimskra karlmanna hafi ranglega verið bendlaðir við Daesh á undanförnum árum, einkum á þeim tíma er mikil upplausn og átök áttu sér stað í Írak á árunum 2014 til 2018, þ. á m. í Mósúl þar sem M hafði búsetu. Með vísan til framangreindra upplýsinga um heimaríki M verður frásögn hans um að bræður hans hafi verið handteknir og krafist hafi verið lausnargjalds gegn lausn þeirra úr haldið árið 2018 ekki dregin í efa. Þá er frásögn M um að flokksmenn Al Hashd hafi leitað hans árið 2017 ekki dregin í efa. M hefur hins vegar ekki lagt fram gögn um að hann sé eða hafi verið undir sérstöku eftirliti síðan þá eða síðan hann yfirgaf heimaríki sitt og er ekkert í gögnum málsins eða heimildum um heimaríki M sem bendir til þess að hann sé í þeirri stöðu að vera sérstakt skotmark Al Hashd eða annarra hópa í heimaríki. Þá benda þau gögn sem kærunefnd hefur skoðað til þess að aðstæður í Mósúl hafi breyst til batnaðar frá þeim tíma sem M bjó þar síðast árið 2017. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að M hafi ekki leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við að sæta ofsóknum af hálfu Al Hashd vegna friðsamlegra mótmæla árið 2013. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að M hafi sætt ofsóknum eða að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu yfirvalda í Írak sem nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um.

M hefur einnig borið það fyrir sig að óttast heiðursofbeldi af hálfu fjölskyldu K í heimaríki. Samkvæmt framangreindum skýrslum geta karlmenn átt á hættu að vera þolendur heiðursofbeldis en það sé þó mun sjaldgæfara en gagnvart konum. Dæmi séu um að þeir menn sem séu undir þrýstingi að ganga í hjónaband og neiti því hafi verið drepnir. Þá komi fram að þegar karlmaður sé myrtur í heiðursdeilu eigi það frekar rætur að rekja til hefndar eða blóðhefndar en heiðurs fjölskyldunnar. Í slíkum málum séu báðar fjölskyldurnar vanalega samþykkar morðinu. Af frásögn M má ráða að hann sé í góðu sambandi við fjölskyldu sína í heimaríki og hafi skilið við fyrrverandi eiginkonu sína í fullu samráði við hana og fjölskyldu hennar. Er það mat kærunefndar með vísan til frásagnar M og gagna málsins að M hafi ekki leitt að því líkur að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki af hálfu fjölskyldu K.

K greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera fædd og uppalin í Mósúl í Ninewa héraði. Hún kvaðst tilheyra Acheera E Mola ættbálknum og vera súnní-múslimi. Faðir hennar hafi látið lífið árið 2003 en í Írak sé hefð fyrir því að karlmaður sjái um fjölskyldu sína svo bróðir hennar hafi tekið ábyrgð á henni og móður hennar eftir að faðir hennar lést. Bróðir hennar hafi krafist þess að hún gengi í hjónaband. Eftir tveggja mánaða hjónaband hafi fyrrum eiginmaður hennar farið að beita hana ofbeldi. Fjölskylda hennar hafi sagt henni að hætta að kvarta og þá hafi hún ekki getað leitað til lögreglu því engin lög kveði á um bann við hegðuninni og hefði það varpað rýrð á orðspor fjölskyldu hennar. Henni hafi tekist að flýja til fjölskyldu sinnar en þá hafi bróðir hennar farið að beita hana ofbeldi fyrir að yfirgefa eiginmann sinn. Hún hafi þá flúið til Kirkuk og þaðan til Tyrklands. Hún óttist ofbeldi af hálfu fjölskyldu sinnar og jafnvel að þau muni drepa hana vegna fyrrgreindrar háttsemi þar sem hún hafi rýrt heiður fjölskyldu sinnar með flóttanum.

Samkvæmt framangreindum landaupplýsingum, þ. á m. skýrslu EUAA frá 2022, kemur fram að margvísleg mannréttindabrot beinist að konum í Írak, þ. á m. kynferðis- og heimilisofbeldi, kynfæralimlestingar, heiðursmorð og þvinguð hjónabönd. Há tíðni heimilisofbeldis og heiðursglæpa sé áhyggjuefni og þolendur veigri sér við að leita aðstoðar yfirvalda, m.a. vegna viðmóts þeirra í garð kvenna. Samkvæmt upplýsingum úr skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2021 eru heiðursmorð framin í Írak til að verja heiður einstaklinga, fjölskyldna eða samfélagsins vegna meintra brota þolenda á samfélagslegum hefðum. Heiðursglæpir séu framdir af eiginmanni, föður, bróður eða öðrum ættingja vegna háttsemi viðkomandi sem talin sé hafa kastað rýrð á orðspor fjölskyldunnar. Slík háttsemi geti t.a.m. falist í því að neita að ganga í hjúskap með þeim sem fjölskyldan hefur valið, ganga í hjúskap gegn vilja fjölskyldunnar eða óska eftir skilnaði. Samkvæmt framangreindum gögnum eru heiðursglæpir alvarlegt vandamál í Írak og hefur tíðni heiðursmorða á konum aukist síðustu ár. Þá skorti stjórnvöld bæði vilja og getu til þess að taka á vandanum og verja þolendur. Dæmi séu um að gerendur í slíkum málum séu sóttir til saka en sjaldan sé sakfellt í slíkum málum. Yfirvöld í Írak séu því ekki fær um að veita þeim sem séu í hættu á heiðursofbeldi skilvirka vernd.

Að mati kærunefndar hefur framburður K um ástæðu flótta síns frá heimaríki verið trúverðugur og í samræmi við skýrslur um heimaríki hennar. Þá hefur verið samræmi á milli frásagnar K og M hvað þetta varðar. Frásögn K og gögn benda til þess að hún hafi áður verið gift og miðað við landaupplýsingar er það ekki dregið í efa að K hafi orðið fyrir ofbeldi í fyrra sambandi sínu og ofbeldi af hálfu bróður síns sem leitt hafi til flótta hennar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að fyrrverandi eiginmaður hennar hafi sótt um skilnað við hana eftir að hún yfirgaf landið og þá hafi hún ekki verið í sambandi við hann síðan. Með vísan til þess er það mat kærunefndar að K eigi ekki á hættu heiðursofbeldi af hálfu fyrrum eiginmanns síns. Hins vegar benda framangreindar skýrslur um heimaríki K m.a. til þess að það teljist kasta rýrð á orðspor fjölskyldu að kona skilji við eiginmann sinn. Með vísan til frásagnar K, gagna málsins og framangreindra landaupplýsinga er það mat kærunefndar að K hafi með nægilega rökstuddum hætti lagt grunn að þeirri málsástæðu að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í formi heiðursglæpa af hálfu fjölskyldu sinnar í heimaríki.

K greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að yfirvöld hafi hvorki getu né vilja til að aðstoða hana. Sú frásögn er í samræmi við þau gögn sem kærunefnd hefur farið yfir um aðstæður í heimaríki kærenda og fjallað hefur verið um hér á að framan. Með vísan til þess er það niðurstaða kærunefndar að K hafi með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Þó svo að umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi sýnt fram á ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum á því landsvæði sem hann býr, er heimilt að synja umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í skýrslu Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna frá því í nóvember 2022 kemur fram að til að ferðast á milli landshluta í Írak þurfi einstaklingar að hafa gild persónuskilríki, s.s. vegabréf. Þá bendir skýrslan til þess að svæðisbundin stjórnvöld í Írak geri strangar kröfur til þess að einstaklingar geti fengið inngöngu á tiltekin svæði og heimild til dvalar þar. Þá þurfi viðkomandi að hafa sterk tengsl við svæðið og þekkja þar íbúa sem sé í stakk búinn til þess að styðja viðkomandi einstakling og hafi auk þess vilja til þess. K hefur greint frá því að hún sé fædd og uppalin í Mósúl borg og að hún hafi búið þar áður en hún lagði á flótta. K hefur greint frá því að hafa flúið fjölskyldu sína vegna ótta við heiðursofbeldi og ekkert bendir til þess að K þekki til eða eigi nákomna ættingja annars staðar í heimaríki sem geti stutt við hana. Í ljósi framangreinds er það mat kærunefndar að ekki sé með sanngirni hægt að ætlast til þess af K að hún setjist að á öðrum stað í Írak, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Telur kærunefnd því ljóst að K uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga til að teljast flóttamaður hér á landi og á rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi skv. 40. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds eru M og barni kærenda veitt alþjóðleg vernd hér á landi á grundvelli 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi niðurstöðu kærunefndar eru ekki forsendur til að fjalla um aðrar kröfur kærenda.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Kærendum og barni þeirra er veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga. Lagt er fyrir stofnunina að veita kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The appellants and their child are granted international protection in accordance with Article 37, paragraph 1, and Article 40, paragraph 1, of the Act on Foreigners. The Directorate is instructed to issue them residence permit on the basis of Article 73 of the Act on Foreigners.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta