Greiðsluþátttöku í astma- og ofnæmislyfjum breytt
Ákveðið hefur verið að miða endurgreiðslur astma- og ofnæmislyfja við ódýrustu dagskammtana. Er breytingin í samræmi við það sem gert hefur verið í lyfjamálum á árinu. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna öndunarfæralyfja í ATC flokkunum R03A (adrenvirk lyf til innúðunar) og R03B (önnur lyf til innúðunar gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi) breytist þann 1. janúar 2010.
Greiðsluþátttaka í þessum lyfjum verður með svipuðum hætti og vegna PPI lyfja, blóðfitulækkandi lyfja, blóðþrýstingslyfja og beinþéttnilyfja, þ.e. hagkvæmustu pakkningarnar verða með almenna greiðsluþátttöku.
Hagkvæmustu pakkningar eru metnar út frá verði á ráðlögðum dagskammti í pakkningu og þær pakkningar B-merktar sem innihalda dagskammta er víkja ekki meir en 290% frá ódýrasta dagskammti.
Læknir getur sótt um lyfjaskírteini fyrir dýrari lyfjunum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum skv. vinnureglu. Vinnureglan er svona:
Fyrir sjúklinga sem nú þegar eru á meðferð með dýrari lyfjunum sem gengur vel og fyrirsjáanleg er áframhaldandi meðferð þá getur læknir sótt um lyfjaskírteini þar sem færð eru fagleg rök fyrir notkuninni. Ekki er gerð krafa um nýjar rannsóknir sem staðfestir astmagreininguna. Fullnægjandi er að tiltaka eldri rannsókn sem styður greininguna.
Til þess að sjúklingar sem nú þegar eru á dýrari lyfjunum fái nægan tíma til að kynna sér breytingarnar og ræða við sinn lækni verða lyfjaávísanir á lyf í ATC flokki R03A og R03B gefnar út fyrir 1. janúar 2010 með óbreyttri greiðsluþátttöku til 1. apríl 2010.
Reglugerð nr. 967/2009 um (4.) breytingu á reglugerð nr. 236/2009 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við starfsmenn lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands í síma 560 4450, eða með tölvupósti á netfangið [email protected]