Hoppa yfir valmynd
27. júní 2024 Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýr tækniskóli rís í Hafnarfirði

Frá undirritun samkomulagsins í dag. Frá vinstri: Egill Jónsson, formaður stjórnar Tækniskólans, Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra. - mynd

Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029.

„Þessi undirskrift hér í dag er risavaxið skref í eflingu verk- og starfsnáms, núna er loksins hægt að koma framkvæmdum af stað. Þetta hefur verið forgangsmál mitt sem menntamálaráðherra og ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili og er mikið gleðiefni að sjá enn einn áfangann á þeirri vegferð verða að veruleika. Eftirspurnin er til staðar, bæði meðal nemenda og atvinnulífsins og því ánægjulegt að við stígum þetta mikilvæga skref nú saman til að mæta þessari þörf,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Tækniskólinn er einn af burðarásum iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæði hans er komið til ára sinna en í dag fer starfsemi skólans fram í átta byggingum á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Bygging nýs Tækniskóla markar umbyltingu í aðstöðu til iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu og er liður í aðgerðum stjórnvalda til að auka veg þess á Íslandi. Markmiðið er að efla námið og aðstöðu, koma allri starfseminni fyrir á einum stað, bregðast við aukinni eftirspurn eftir náminu og mæta þörfum atvinnulífsins.

„Nú byggjum við af stórhug til framtíðar og það er löngu tímabært að sameina starfsemina á einum stað. Verkefnið hefur verið lengi í undirbúningi og við erum afar þakklát stjórnvöldum og Hafnarfjarðarbæ fyrir þann stuðning og traust sem þau sýna skólanum með aðkomu sinni að þessu stóra verkefni. Ábyrgð skólans er mikil og við höfum undirbúið verkefnið af kostgæfni og erum sannfærð um að nýbygging skólans og hugmyndafræðin að baki grunnhönnun hennar muni stórefla iðn-, starfs- og tækninám í landinu,“ sagði Egill Jónsson, formaður stjórnar Tækniskólans.

Hugmynd að opnu miðrými í hjarta skólans

Fyrirhuguð er 30.000 fermetra bygging sem rúmar um 3.000 nemendur á gróskumiklu hafnarsvæði í námunda við fjölbreytta atvinnustarfsemi. Framkvæmdin verður í tveimur áföngum, í fyrri áfanga er byggð um 24.000 m2 bygging og í seinni áfanga um 6.000 m2 viðbót. Þá er gert ráð fyrir frekari stækkunarmöguleikum á lóðinni í framtíðinni.

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, fagnar því að samkomulagið sé í höfn. „Lífið á hafnarbakkanum tekur miklum breytingum þegar Tækniskólinn rís við Suðurhöfnina og þúsundir nemenda sækja þangað nám. Skólinn mun falla vel inn í þá uppbyggingu sem framundan er á hafnarsvæðinu. Við Hafnfirðingar erum spennt að fá skólann í bæinn og erum viss um að koma hans mun auka umsvif og efla mannlíf enn frekar.“

Áætlaður heildarkostnaður er 27 ma.kr. (á verðlagi í janúar 2023 samkvæmt áætlun verkefnisstjórnar).

Flensborgarhöfn - fyrirhugaður byggingareitur á miðri mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum