Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Breytingar og leiðbeiningar um innflutning á kjöti

Talsverðar breytingar urðu á reglum um innflutning á ferskum kjötvörum um áramótin. Innflytjendur þurfa nú meðal annars að sýna fram á að að ófrosið og óhitameðhöndlað kjöt af kjúklingum og kalkúnum sé ekki smitað af kampýlóbakter og ekki er lengur gerð krafa um frystiskyldu á fersku kjöti.

Þá taka viðbótartryggingar gildi sem þýðir að með sendingum af eggjum, svínakjöti, nautagripakjöti, kjúklingakjöti og kalkúnakjöti þurfa að fylgja staðfestingar á að ekki hafi greinst salmonella í vörunni.

Matvælafyrirtæki sem flytja inn kjöt til landsins eru hvött til að kynna sér vel breytingarnar en Matvælastofnun hefur gefið út leiðbeiningar vegna þeirra. Þær má finna á vef MAST.

Breytingarnar eru unnar í samræmi við aðgerðaáætlun í 17 liðum um að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu. Áætlunin var lögð fram af Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og var hún samþykkt sem þingsályktun hinn 19. júní sl. Unnið hefur verið að mótun og framgangi þeirra aðgerða í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu frá því í desember 2017 og er sú vinna í forgangi í ráðuneytinu

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta