Hjólað til vinnu
Heilsuátak ÍSÍ og Lýðheilsustöðvar “Hjólað í vinnuna” hófst formlega í morgun en með átakinu er fólk hvatt til að hreyfa sig. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, mætti í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í morgun á hjóli til þess að hvetja fólk til að hreyfa sig og stuðla með því betri heilsu. Átakið stendur til 16. maí og eru starfsmenn á vinnustöðum hvattir til að taka sig saman og hreyfa sig.