Mannanafnanefnd, úrskurðir 1. júlí 2011
Mál nr. 41/2011 Eiginnafn: Maxima
Hinn 1. júlí 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 41/2011 en erindið barst nefndinni 20. maí:
Eiginnafnið Maxima (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Maximu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Maxima (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
Mál nr. 49/2011 Eiginnafn: Alexis
Hinn 1. júlí 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 49/2011 en erindið barst nefndinni 20. júní:
Eiginnafnið Alexis (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Alexisar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Alexis (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
Mál nr. 51/2011 Eiginnafn: Bjarný
Hinn 1. júlí 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 51/2011 en erindið barst nefndinni 29. júní:
Eiginnafnið Bjarný (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Bjarnýjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Bjarný (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.