Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 185/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 185/2022

Fimmtudaginn 7. júlí 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. apríl 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. mars 2022, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. september 2021 og var umsóknin samþykkt 3. nóvember 2021. Þann 23. febrúar 2022 var ferilskrá kæranda send til B vegna starfs hjá fyrirtækinu. Þann 1. mars 2022 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar frá fyrirtækinu um að kærandi hefði ekki mætt í boðað atvinnuviðtal. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 14. mars 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá umræddu fyrirtæki. Skýringar bárust frá kæranda þann 21. mars 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. mars 2022, var kæranda tilkynnt að skýringar hennar hefðu ekki verið metnar gildar og að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. apríl 2022. Með bréfi, dags. 7. apríl 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð þann 23. maí 2022. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 1. júní 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. júní 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að bótaréttur hennar hafi verið felldur niður í þrjá mánuði. Hún hafi móttekið bréf frá Vinnumálastofnun þar sem því hafi verið haldið fram að hún hafi hafnað starfstilboði með því að mæta ekki í atvinnuviðtal. Staðan sé hins vegar sú að fyrirtæki hafi haft samband við kæranda vegna boðunar í atvinnuviðtals án þess að kærandi hafi fengið nafn, heimilisfang eða aðrar upplýsingar fyrir viðtalið. Hún hafi fengið smáskilaboð með nafni fyrirtækisins, þó annað nafn en Vinnumálastofnun hafi síðar nefnt, auk heimilisfangs nokkrum klukkustundum fyrir viðtalið sem hafi átt að fara fram degi síðar. Henni þyki gott að undirbúa sig með því að kynna sér fyrirtækin og starfsfólkið sem komi til með að taka hana í viðtal. Hún hafi komist að því að um væri að ræða veitingastað á golfvelli sem væri að leita að yfirkokki. Hún sé sjálf kökugerðarmeistari og hafi starfað í matvælaiðnaði í yfir 16 ár en hafi lagt áherslu á bakstur.

Kærandi sé sannfærð um að hún hefði ekki getað staðið undir þeirri ábyrgð sem krafist væri í umræddu starfi. Auk þess sé hún að reyna að stofna eigið fyrirtæki en geti því miður hvorki nýtt sér „Frumkvæði“, úrræði Vinnumálastofnunar, né ráðið sig til starfa í fyrirtækinu þar sem ekkert fjármagn sé fyrir launum. Kærandi hafi upplýst atvinnurekanda kurteislega um framangreint. Hún hafi ekki viljað láta þá eyða tíma sínum í að taka hana í viðtal sem hefði leitt til þess að þeir hefðu neitað henni um starfið þar sem hún væri ekki hæf. Hún hafi sjálf verið í yfirmannsstöðu í bakaríum í París fyrir nokkrum árum og þekki því hve mikil fyrirhöfn felist í atvinnuviðtölum og ráðningum í störf. Hún hafi þar af leiðandi ekki viljað sóa tíma annarra í þeirri stöðu. Hún hafi ekki ætlað að vera dónaleg heldur þyki henni tíminn dýrmætur og því eigi ekki að sóa honum.

Það sé erfitt fyrir kæranda að finna vinnu í bakaríi núna með þá reynslu sem hún hafi. Hún telji málið vera byggt á misskilningi á afstöðu hennar og voni að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði tekin til endurskoðunar og verði breytt.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 28. september 2021. Með erindi, dags. 3. nóvember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt. Með vísan til starfsloka kæranda hjá fyrrverandi vinnuveitanda hafi réttur hennar til atvinnuleysisbóta verið felldur niður í tvo mánuði.

Í febrúar 2022 hafi fyrirtækið B skráð starfsauglýsingu á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Fyrirtækið hafi verið að leita að reyndum starfsmanni í eldhús við að grilla, sjá um undirbúning hráefna og önnur tilfallandi störf í eldhúsi. Ferilskrá kæranda hafi í kjölfarið verið send til atvinnurekanda, enda hafi kærandi merkt matreiðslu sem óskastarf á umsókn sinni um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi að auki haft víðtæka reynslu af matreiðslustörfum og menntað sig í matreiðslu í Frakklandi.

Þann 1. mars 2022 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist upplýsingar um að kærandi hefði hafnað því að mæta í atvinnuviðtal hjá fyrirtækinu. Samkvæmt upplýsingum frá atvinnurekanda hafi kærandi samþykkt að mæta í viðtal en stuttu áður en viðtalið hafi átt að eiga sér stað hafi kærandi sent skilaboð um að hún myndi ekki mæta. Kærandi hafi tjáð atvinnurekanda að hún væri að reka sitt eigið fyrirtæki og að auglýst starf hafi ekki hentað henni. Með erindi, dags. 14. mars 2022, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til ástæðna höfnunar á atvinnutilboði. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á því að höfnun á atvinnutilboði eða atvinnuviðtali, án gildra ástæðna, gæti leitt til biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Skýringar hafi borist frá kæranda þann 21. mars 2022. Í skýringum frá kæranda komi fram að fyrirtækið hafi boðið kæranda stöðu yfirkokks. Hún hafi verið upplýst um nafn fyrirtækisins stuttu áður en viðtalið hafi átt að fara fram og hafi því ekki gefist tími til að kynna sér starfsemina. Þegar hún hafi skoðað upplýsingar um fyrirtækið hafi hún komist að því að um væri að ræða veitingastað á golfvelli. Hún hafi upplýst fulltrúa fyrirtækisins um að hún teldi sig ekki passa í starfið þar sem hún væri fremur að leita sér að starfi sem bakari.

Með erindi, dags. 31. mars 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hennar hafi verið felldar niður í þrjá mánuði. Ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstkalinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé áréttað að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þyki mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við það að hafna starfi. Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað því að mæta í atvinnuviðtal hjá B. Ágreiningur snúi að því hvort skýringar kæranda séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi hafi fært fram lúti að því að hún sé fremur að leita sér að starfi sem bakari. Hún hafi síðustu ár einbeitt sér að og sérhæft sig í bakstri. Þar að auki sé kærandi að vinna að því að stofna sitt eigið fyrirtæki. Að mati Vinnumálastofnunar geti atvinnuleitendur almennt ekki hafnað því að mæta í atvinnuviðtöl á þeim forsendum að þeir séu fremur að leita að störfum sem henti þeim betur. Atvinnuleitandi eigi að vera reiðubúinn að taka starf án sérstaks fyrirvara. Kærandi hafi reynslu af matreiðslustörfum og getu til að sinna umræddu starfi. Það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda fyrir því að hafna að mæta í atvinnuviðtal geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

Þann 3. nóvember 2021 hafi kærandi þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi nú jafnframt verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. á sama tímabili samkvæmt 29. gr. laganna. Komi því til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga og því beri kæranda nú að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í athugasemdum við 57. gr. í frumvarpi því er varð að lögunum kemur fram:

„Enn fremur þykir mikilvægt að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem býðst. Ástæðan er einkum sú að atvinnuviðtal er venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þykir það mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi. Verður að teljast óeðlilegt að hinn tryggði geti neitað því að fara í atvinnuviðtal án viðbragða frá kerfinu en þeir sem fóru í viðtalið og var boðið starfið þurfi að þola biðtíma eftir atvinnuleysisbótum taki þeir ekki starfinu.“

Óumdeilt er að kærandi kærandi mætti ekki í atvinnuviðtal hjá B. Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi sérhæft sig í bakstri en um sé að ræða starf yfirkokks á veitingastað. Þá hefur kærandi gefið þær skýringar að hún hafi ekki viljað eyða tíma atvinnurekanda þar sem hún teldi sig ekki hæfa til starfsins. Þá vísaði kærandi einnig til þess að hún væri að reyna að stofna eigið fyrirtæki. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti það að sinna ekki framkomnu atvinnuviðtali hjá B. Atvinnuviðtöl eru oft undanfari atvinnutilboðs og bar kæranda því að sinna atvinnuviðtalinu.

Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 3. nóvember 2021 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. mars 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta