Mál nr. 68/2015 Úrskurður 30. september 2015
Mál nr. 68/2015 Eiginnafn: Sæla
Hinn 30. september 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 68/2015 en erindið barst nefndinni 22. september:
Eiginnafnið Sæla (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sælu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Sæla (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.