Mál nr. 69/2015 Úrskurður 30. september 2015
Mál nr. 69/2015 Eiginnafn: Malína
Hinn 30. september 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 69/2015 en erindið barst nefndinni 23. september:
Eiginnafnið Malína (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Malínu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Malína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.