Norðurskautsríkin æfa leit og björgun við Austur-Grænland
![SAREX_2012 SAREX_2012](/media/utanrikisraduneyti-media/media/nordurslodir/medium/SAREX_2012.jpg)
Í dag hefst fjögurra daga leitar- og björgunaræfing norðurskautsríkjanna á Grænlandshafi sem byggir á alþjóðasamningi Norðurskautsráðsins um leit og björgun. Samningurinn var undirritaður af utanríkisráðherrum allra norðurskautsríkjanna átta á síðasta ári í tengslum við fund ráðsins í Nuuk á Grænlandi.
Danir sjá um skipulag æfingarinnar sem fer fram á hafsvæðinu milli Íslands og Grænlands og á fjörðum á Austur-Grænlandi. Landhelgisgæslan heldur utan um framkvæmd æfingarinnar fyrir hönd Íslands og taka fjölmargir innlendir viðbragðsaðilar þátt í æfingunni m.a. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Isavia og Rauði kross Íslands. Nánari upplýsingar um æfinguna er að finna á heimasíðu Landhelgisgæslunnar www.lhg.is