Reglur um greiðslu viðbótarlauna komnar á vefinn
Reglur um greiðslu viðbótarlauna sem Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra undirritaði 7. mars sl. eru nú aðgengilegar á vef fjármálaráðuneytisins.
Reglurnar gilda fyrir alla starfsmenn ríkisins aðra en embættismenn og tóku gildi við undirritun. Hverjum forstöðumanni er ætlað að setja sérreglur fyrir stofnun sína. Þær reglur skulu vera í samræmi við reglur ráðuneytisins, vera vel kynntar og aðgengilegar öllum starfsmönnum. Reglurnar hafa jafnframt verið sendar öllum stofnunum og bandalögum ríkisstarfsmanna.
- Reglur um greiðslu viðbótarlauna skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 70/1996
- Yfirlýsing fjármálaráðherra vegna setningar reglna um viðbótarlaun
- Bréf til forstöðumanna og ráðuneyta varðandi reglur um greiðslu viðbótarlauna (PDF 68 KB), dags. 14. mars 2007
- Skráning viðbótarlauna í Oracle og útreikningar