Hoppa yfir valmynd
31. mars 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Aðgerðir sem snerta 65.000 manns: Fjármálaáætlun frá sjónarhóli öryrkja og eldra fólks

Í Fjármálaáætlun 2026-2030 eru stór tíðindi fyrir öryrkja og eldra fólk. Tvær umfangsmiklar breytingar verða fjármagnaðar með áætluninni, auk kerfisbreytingar sem nýtt örorkulífeyriskerfi felur í sér.

„Áætlunin markar vatnaskil fyrir öryrkja og aldraða á Íslandi. Við sýnum hér að sú hugsjón að taka betur utan um fólkið okkar er sannarlega komin til framkvæmda,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Greiðslur fylgi betur almennri kjaraþróun á vinnumarkaði með tengingu við launavísitölu

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að árlegar breytingar á örorku- og ellilífeyrisgreiðslum taki framvegis mið af hækkun launavísitölu og verði aldrei minni en sú hækkun sem verður á verðlagi. Þetta er til að stuðla að því að greiðslurnar fylgi betur almennri kjaraþróun á vinnumarkaði og tryggja að lífeyrisþegar dragist ekki aftur úr í kaupmætti. Aðgerðin er nú fjármögnuð í fjármálaáætlun.

Breytingin snertir alla sem fá greiðslur frá almannatryggingum á Íslandi – alla sem fá örorkulífeyri, ellilífeyri eða endurhæfingarlífeyri. Það eru um 65.000 manns.

„Þetta er risastórt mál og stórkostlegt að sjá það verða að veruleika. Kjaragliðnun almannatrygginga og launa verður með þessu loksins úr sögunni og fólk um land allt nýtur góðs af,“ segir Inga Sæland.

Almennt frítekjumark ellilífeyris hækkar

Í öðru lagi er í fjármálaáætlun gert ráð fyrir að almennt frítekjumark ellilífeyrisþega hækki í þrepum úr 36.500 kr. og upp í 60.000 kr. á mánuði. Aðgerðin er einnig samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Í dag má ellilífeyrisþegi hafa 438.000 kr. í tekjur á ári án þess að ellilífeyrisgreiðslur hans byrji að lækka. Þegar breytingarnar verða að fullu komnar til framkvæmda mun viðkomandi hins vegar geta haft 720.000 kr. í tekjur á ári án þess að greiðslurnar lækki. Munurinn þarna á milli er 282.000 kr. Engu skiptir hvaðan tekjurnar koma og hvort þær eru til dæmis fjármagnstekjur, tekjur frá lífeyrissjóðum eða atvinnutekjur.

Nýtt örorkulífeyriskerfi

Í þriðja lagi er fjármagn í fjármálaáætlun vegna nýs örorkulífeyriskerfis sem tekur gildi í haust. Við gildistökuna verður greiðslukerfið einfaldað og greiðslur hækkaðar. 95% lífeyrisþega munu fá hærri greiðslur í nýju kerfi.

Þá eru í nýja kerfinu hvatar til atvinnuþátttöku og samvinna verður aukin í endurhæfingu. Greiðslur verða samfelldar og samhæfingarteymi hafa yfirsýn yfir mál einstaklinga sem þurfa þjónustu fleiri en eins kerfis.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta