Ráðherra heimsækir Landspítala
Heilbrigðisráðherra heimsækir þessa dagana deildir Landspítala ásamt aðstoðarmanni sínum og embættismönnum heilbrigðisráðuneytisins. Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, heimsótti slysa- og bráðadeild LSH, röntgendeild, bæklunarskurðdeildir og skurðstofur og smitsjúkdómadeild á Landspítala Fossvogi og heimsótti síðan Klepp og barna- og unglingageðdeildin (BUGL) við Dalbraut. Heilbrigðisráðherra heimsækir fleiri deildir Landspítala í vikunni þar sem hún ræðir við starfsmenn og kynnir sér starfsemi spítalans.
Álheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, heimsótti ma. BUGL á Dalbraut.